Mánudagur 24. febrúar
Hestamannafélagið Hörður kl. 10:00-12:00
Hestamennt og Hestasnilld
Teymt undir börnum, klapp og kynning.
Lágafellslaug kl. 10:00-14:00
Wipeout braut í innilaug
Skemmtilega Wipeout brautin fyrir alla hressa krakka.
Bókasafn kl. 13:00-15:00
Fjallageitur og klippimyndir: Klippimyndasmiðja í fjölnotasal safnsins
Upp, upp, upp á fjall, upp á fjallsins brún. Niður, niður, niður, niður alveg niður á tún. Þetta hafa mörg börn sungið dátt. En Mosó er einmitt þekkt fyrir sinn fallega fjallahring. Hvert sem augað eygir sést fallegt fjall sem staðsetur okkur, getur þjónað sem áttaviti og sagt okkur ýmislegt um veðrið. Er snjór í Esjunni í dag? Og hvar er Grýla? Er einhver uppi á Helgafelli? Af hverju er Mosfell ekki fjall, bara fell? Eru fjallstoppar og ístoppar það sama?
Í þessari smiðju munum við virkja sköpunarkraftinn með því að skoða hinn fallega fjallahring sem umkringir Mosfellsbæ. Hvert barn mun skapa sína eigin klippimynd þar sem við leikum okkur með orð og myndir af fjöllunum okkar og fáum fyrir vikið betri sýn yfir bæinn.
Smiðjustjóri er Vilborg Bjarkadóttir, myndlistarkona.
Smiðjan er ætluð börnum og fjölskyldum og er gjaldfrjáls. Ekki er þörf á skráningu.
Öll velkomin!
Golfklúbbur Mosfellsbæjar kl. 13:30-14:30
Golf hjá golfklúbbnum
Golfkennarar taka vel á mótibörnum í vetrarfríinu. Kylfur til láns.
Þriðjudagur 25. febrúar
Lágafellslaug kl. 10:00-14:00
Wipeout braut í innilaug
Skemmtilega Wipeout brautin fyrir alla hressa krakka.
Bókasafn kl. 13:00-15:00
Kórónusmiðja
Föndursmiðja í fjölnotasal safnsins. Hvern hefur ekki dreymt um að bera konunglegt höfuðdjásn? Opin smiðja þar sem allur efniviður til kórónugerðar er til staðar. Smiðjan er ætluð börnum og fjölskyldum og er gjaldfrjáls. Ekki er þörf á skráningu.
Öll velkomin!
Íþróttamiðstöðin að Varmá kl. 13:00-15:00
Fjör með félagsmiðstöðinni Bólinu
Salur í íþróttamiðstöðinni að Varmá fyrir 5. – 7. bekk.
Golfklúbbur Mosfellsbæjar kl. 13:30-14:30
Golf hjá golfklúbbnum
Golfkennarar taka vel á mótibörnum í vetrarfríinu. Kylfur til láns.