Opinn fundur með foreldrum og forsjáraðilum grunnskólabarna á miðstigi verður haldinn í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ, þriðjudaginn 15. október kl.17:00.
Öll viljum við að börnunum okkar líði vel, því þurfum við sem samfélag að leggjast á eitt og vinna saman að vellíðan þeirra og öryggi.
Mosfellsbær boðar til sameiginlegs fundar með foreldrum grunnskólabarna á miðstigi í Mosfellsbæ, starfsfólki Fræðslu- og frístundasviðs og Velferðarsviðs ásamt Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og öðrum góðum gestum.
Vonumst til að sjá sem flest og að við getum átt gott samtal um það umhverfi sem við viljum að börnin okkar alist upp í.