Við byrjum sumarlesturinn snemma í ár og kynnum til leiks landnámshænuna Lindu! Linda býður öllum börnum sem eru byrjuð að lesa í ævintýralegt ferðalag um landið sitt – Terra Gallina (Hænuland)!
En hvernig virkar þetta?
Þú byrjar á því að sækja þér vegabréf í afgreiðslu bókasafnsins. Síðan lest þú eins og vindurinn (eða hænurass í vindi). Þegar þú hefur lesið fjórum sinnum í 15 mínútur færð þú stimpil og happamiða sem þú fyllir út og laumar í gráa póstkassann í barnadeildinni. Í hverri viku í allt sumar drögum við svo einn heppinn þátttakanda úr pottinum sem fær geggjaðan glaðning.
Við óskum ykkur góðrar ferðar og hlökkum til að sjá ykkur í safninu í sumar!