Stormsveitin mætir í Hlégarð í glaðlegum gír með söng, sögur og almenn huggulegheit. Lagavalið eru uppáhalds lög kórmanna þar sem útsetningar fá að njóta sín í botn við undirleik Þóris Úlfarssonar og Arnórs Sigurðarsonar.
Kaupa miða á tix.is:
Efniskráin samanstendur af dægurlögum og þjóðlegum lögum frá síðustu 50 árum sem sungin eru í flottum kórútsetningum þar sem röddun fær að njóta sín. Einnig stíga kórmenn fram og segja sögur af sér og öðrum á léttum nótum.
Kórinn saman stendur af 14 mönnum sem syngja í 4 röddum eins og hefðbundinn karlakór.