Við fögnum nýju sögustundaári með Einari Áskeli og lesum saman bókina „Þú átt gott, Einar Áskell“.
Einar Áskell og pabbi hans eru ósköp niðurlútir eftir jólin. Þeim finnst eiginlega að það ætti að vera hægt að hlaupa yfir allt sem er leiðinlegt og hafa hátíð á hverjum einasta degi. Amma er ósammála og raunar getur hún ekki hætt að hlæja að þessari hugmynd feðganna.
Höfundur: Gunilla Bergström.
Öll velkomin!