Í sögustund febrúarmánaðar lesum við eilítið stytta útgáfu af sígildu bókinni „Blómin á þakinu“.
Gunnjóna ákveður að flytja úr sveitinni sinni. Hana langar að upplifa hvernig er að búa í borg. Í blokkinni sem hún flytur í býr forvitinn krakki sem fylgist með því hvernig henni gengur að aðlagast borgarlífinu. Það gerir hún á sinn hátt og á endanum er borgaríbúðin orðin nógu sveitaleg til að henni líði vel þar.
Höfundur: Ingibjörg Sigurðardóttir. Myndlýsing: Brian Pilkington.
Öll velkomin!