Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

    Mosfellskirkja

    Sögu­fé­lag Kjal­ar­nes­þings gengst fyr­ir sögu­ferð að Mos­felli þriðju­dag­inn 3. júní nk. kl. 16:00. Til­efn­ið er að minn­ast þess að séra Magnús Gríms­son prest­ur á Mos­felli 1855-1860 hefði orð­ið 200 ára hinn 3. júní 2025.

    Magnús­ar er ekki síst minnst fyr­ir að vera upp­hafs­mað­ur að söfn­un þjóð­sagna á Ís­landi ásamt Jóni Árna­syni. Rifj­uð verða upp kvæði sem hann orti, sagt frá ferða­bók um Kjós­ar­sýslu sem hann skrif­aði, þjóð­sög­um sem hann safn­aði, ræðu sem hann flutti yfir sex ver­mönn­um sem lét­ust á Mos­fells­heiði og voru jarð­sett­ir í Mos­fells­kirkju­garði, og ýmsu öðru. Minn­ing­ar­mörk eru tvö um Magnús á Mos­felli og verða þau skoð­uð ásamt brjóst­mynd af Ólafíu Jó­hanns­dótt­ur sem fædd var á Mos­felli.

    Leið­sögu­mað­ur verð­ur Bjarki Bjarna­son rit­höf­und­ur sem al­inn er upp á kirkju­staðn­um og hef­ur búið í næsta ná­grenni nær alla tíð.

    Öll vel­komin í ferð Sögu­fé­lags Kjal­ar­nes­þings þar sem geng­ið verð­ur um svæð­ið við Mos­fells­kirkju og í kirkju­garð­in­um og rifjað­ar upp gaml­ar sög­ur og sagn­ir.

    Ferð­in er áætluð tæp­ar tvær klukku­stund­ir.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-13:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-13:00