Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Hlégarður

Dag­ana 19. – 22. júní verð­ur há­tíð­in Barna­djass í Mosó hald­in í þriðja sinn! Haldn­ir verða fern­ir tón­leik­ar þar sem tón­listar­fólk á aldr­in­um 8-15 ára kem­ur fram.

Opn­un­ar­tón­leik­ar verða haldn­ir í Hlé­garði fimmtu­dag­inn 19. júní kl. 19:00. Þá verð­ur há­tíð­in Barna­djass í Mosó sett með pompi og prakt og frum­flutt nýtt lag eft­ir Sunnu Gunn­laugs.

Þar koma fram:

Gest­gjaf­ar há­tíð­ar­inn­ar, Djasskrakk­ar:
Edda Mar­grét Jon­as­dótt­ir, 11 ára – klar­in­ett, Emil Huld­ar Jonasson, 13 ára – pí­anó, Helga Mar­grét Ein­ars­dótt­ir, 10 ára – tromm­ur, Rakel Elaisa All­ans­dótt­ir, 11 ára – trom­pet, Sig­ríð­ur Sóllilja Ein­ars­dótt­ir, 15 ára – kontrabassi og Svandís Erla Pét­urs­dótt­ir, 14 ára – saxó­fónn.

Ís­firsk­ir gest­ir:
Laufey Þuríð­ur Hálf­dáns­dótt­ir, 9 ára – pí­anó og Vil­borg – trom­pet.

Er­lend­ir gest­ir:
Vilde Paul­sen Tosterud, 12 ára – tromm­ur og Elsa Johanna Lie, 13 ára – saxó­fónn báð­ar frá Nor­egi og frá Fær­eyj­um koma Jasmin á Stong­un­um, 11 ára – Saxó­fónn og Na­talia Mary Á Høga­bóli, 12 ára – klar­in­ett.

Öll und­ir stjórn Odd André El­ve­land frá Nor­egi og Har­una Koyamada frá Jap­an.

Sér­stak­ur gest­ur opn­un­ar­tón­leik­anna verð­ur Sunna Gunn­laugs­dótt­ir, tón­skáld og jazzpí­an­isti. Hún stjórn­ar frum­flutn­ingi á nýju lagi sínu Sum­ar mars.

Á tón­leik­un­um verða flutt­ir djass- og blús­st­and­ar­d­ar auk nokk­urra dæg­ur­laga. Við lof­um krass­andi sóló­um.

Ekki missa af þessu ein­staka tæki­færi að heyra í djass­geggj­ur­um fram­tíð­ar­inn­ar spila.


List­rænn stjórn­andi há­tíð­ar­inn­ar er Odd André El­ve­land en hann er norsk­ur djass­tón­list­ar­mað­ur og rek­ur tón­list­ar­skól­ann Improba­sen i Osló. Hann hef­ur þró­að að­ferð­ir til að kenna ung­um börn­um að spila djass eft­ir eyr­anu og að improvisera og unn­ið með börn­um víðs­veg­ar um heim­inn. Ár­lega stend­ur hann fyr­ir tón­list­ar­há­tíð­inni Kids in jazz í Osló og sæk­ir há­tíð­in okk­ar inn­blást­ur það­an.


Eft­ir­tald­ir að­il­ar styrkja há­tíð­ina:
Mos­fells­bær, Barna­menn­ing­ar­sjóð­ur, Nord­isk kult­ur­kontakt, menn­ing­ar­sjóð­ur FÍH og ÍAV.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00