Listasalur Mosfellsbæjar býður öll velkomin í leiðsögn og létt spjall með Linus Lohmann í tengslum við sýningu hans Shrubs (ísl. runnar).
Linus Lohmann er listamaður frá Hannover sem vinnur fyrst og fremst við teikningu, skúlptúr og prentsmíði. Hann notar óvenjulega nálgun við úrlausn vandamála þar sem verk hans einblína á tengsl ásetnings og efnis, og nýtir til þess ýmsar aðferðir við gerð verka.
Á þessari sýningu beinist athygli Linus Lohmann að náttúrunni: ekki óbyggðum náttúrunnar heldur jaðarsvæðum nútímans þar sem merking og tilgangur er óljós. Hann laðaðast að stöðum eins og runnum í vegakanti sem hafa verið troðnir niður af förum dýra eða manna. Með teikningum og skúlptúr fjallar Shrubs á áhrifaríkan hátt um hvernig merking skapast — og hverfur — með því einu að horfa. Ferlið er í eðli sínu huglægt en er einnig algjörlega háð því hvar við erum stödd í heiminum.
Linus lauk MFA frá Kunsthochschule Berlin Weissensee árið 2012. Hann hefur sýnt í galleríum og rýmum eins og Maximilian Pavillion og The Paint Shop í Berlín (2024), Ásmundarsal Gryfju, Reykjavík (2022), Gallerí Úthverfa á Ísafirði (2022), Skaftfell listamiðstöð á Seyðisfirði (2016), og Slakthusateljéerna í Stokkhólmi (2015). Verk hans eru um þessar mundir hluti af hópsýningu A. Object í Gallerí Úthverfu, Ísafirði.
Hann býr og starfar á Seyðisfirði.