Listasalur Mosfellsbæjar býður öll velkomin í leiðsögn og létt spjall með Önnu Álfheiði Brynjólfsdóttur í tengslum við sýningu hennar Vinkill.
Vinkill (e. Angle) er áttunda einkasýning Önnu Álfheiðar Brynjólfsdóttur og samanstendur af tólf verkum, þrívíðum málverkum og plexigler verkum. Þó efniviður sé ólíkur eiga verkin sama uppruna. Undanfarin ár hefur hún unnið með óhlutbundin þrívíð form, þar sem strangflatalist mætir ljóðrænni skynjun. Hér kannar hún mörk listformsins samhliða upplifun áhorfandans.
Anna Álfheiður (f. 1977) útskrifaðist með B.A. í myndlist (2009) og M.A. í listkennslu (2020) frá Listaháskóla Íslands. Hún býr og starfar í Reykjavík.
Léttar veitingar í boði á meðan að viðburði stendur.