Miðasala á tix.is:
Skemmtunin fer fram fimmtudagskvöldið 29. ágúst kl. 20, í upphafi bæjarhátíðar Mosfellsbæjar, Í túninu heima.
Lögin sem Laddi hefur samið og sungið í gegnum tíðina skipta tugum ef ekki hundruðum. Lög sem hafa fest sig í sessi í þjóðarsálinni og tengjast minningum um gleði og góða tíma. Hver man ekki eftir lögum á borð við „Flikk Flakk“, „Upp undir Laugarásnum“, „Gibba Gibb“, „Búkolla“ „Súperman“ og mörgum fleirum.
Um er að ræða einstakan viðburð sem engin ætti að láta framhjá sér fara.
Hljómsveitina skipa – ásamt Ladda:
- Magni Ásgeirsson – Gítar/Söngur
- Summi Hvanndal – Bassi/Söngur
- Valur Freyr Halldórsson – Trommur/Söngur
- Arnar Tryggvason – Hljómborð/Söngur
- Pétur Steinar Hallgrímsson – Gítar/Söngur
- Ármann Einarsson – Saxófónn
- Valgarður Óli Ómarsson – Slagverk