Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Hlégarður

Í tón­list­ar­námi er mik­il­vægt að nem­end­ur þjálf­ist al­veg frá í byrj­un að koma fram á tón­leik­um og held­ur Lista­skól­inn fjöl­marga op­in­bera tón­leika yfir árið.

Á haust­tón­leika­dög­um eru sjö tón­leik­ar skipu­lagð­ir á veg­um Lista­skól­ans í Hlé­garði 15., 16. og 17. októ­ber.

Að­gang­ur er ókeyp­is og öll hjart­an­lega vel­komin!


Þriðju­dag­ur 15. októ­ber kl. 16:00

Pí­anó­tón­leik­ar.

Lista­skól­inn hef­ur eign­ast nýj­an flyg­il af gerð­inni Yamaha S3X–PE Premium Grand, 186 cm lang­an og hef­ur Lista­skól­inn lán­að Hlé­garði hljóð­fær­ið á með­an eldri flyg­ill­inn, 50 ára gam­all Bösendorfer konsert­flygill verð­ur tek­inn í gegn og lag­færð­ur en reikn­að er með að sú fram­kvæmd muni taka 1-3 ár.

Á tón­leik­un­um verð­ur nýji flyg­ill­inn form­lega af­hent­ur Lista­skól­an­um af bæj­ar­yf­ir­völd­um. Nem­end­ur og kenn­ar­ar munu leika á flygil­inn, sem er ein­stak­lega hljóm­fag­ur en Yamaha S3X flygl­ar eru þekkt­ir fyr­ir djúp­an ríku­leg­an hljóm og jafn­vægi milli bjart­ari og mýkri tóna. Þessi gerð Yama­haflygla hef­ur ver­ið þró­uð út frá Yamaha CFX konsert­flygl­in­um sem er flaggskip Yamaha og eitt af fremstu tón­leika­húss­hljóð­fær­um í heim­in­um. Þessi teng­ing gef­ur flygl­in­um hljóm sem nálg­ast gæði konsert­flygils og set­ur flygil­inn því skör hærra flesta að­r­ir flygla af sam­bæri­legri stærð.

Þriðju­dag­ur 15. októ­ber kl. 17:00

Fiðlu- og pí­anónem­end­ur.

Þriðju­dag­ur 15. októ­ber kl. 19:00

Selló-, söng- og pí­anónem­end­ur.


Mið­viku­dag­ur 16. októ­ber kl. 17:00

Söng­nem­end­ur.

Mið­viku­dag­ur 16. októ­ber kl. 18:00

Bland­að­ir tón­leik­ar fyr­ir eldri nem­end­ur.


Fimmtu­dag­ur 17. októ­ber kl. 17:00

Gít­ar- og pí­anónem­end­ur.

Fimmtu­dag­ur 17. októ­ber kl. 18:00

Söng-, fiðlu- og tré­blástur­hljóð­færa­nem­end­ur.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00