Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Listasalur

Lista­sal­ur Mos­fells­bæj­ar býð­ur öll vel­komin á opn­un sýn­ing­ar­inn­ar Free From Form (ísl. Laus við form) eft­ir Önnu Gullu Eggerts­dótt­ur og Önnu Wal­lenius, föstu­dag­inn 4. júlí, milli kl. 16-18.

Á sýn­ing­unni bjóða lista­kon­urn­ar gest­um að upp­lifa verk úr leir, strá­um og ull. Verkin eru afrakst­ur sam­tala milli lista­mann­anna um spennu, kyn­slóða­arf, þol­mörk og fram­tíð­ar­drauma. Lista­kon­urn­ar velta fyr­ir sér huld­um öfl­um, inn­grón­um venj­um og ímynd­uð­um tálm­um. Þann­ig er hinu ósýni­lega gef­ið form.

Laus við form inni­held­ur skúlp­túra úr vír og rúgstrá­um sem svífa létt í lofti, leir sem brýst út úr forminu og veggverk sem finna ró í ringul­reið­inni.

Anna Gulla Eggerts­dótt­ir (f. 1984) starf­ar sem þverfag­leg­ur hönn­uð­ur og lista­mað­ur með að­set­ur á Ís­landi og í Sví­þjóð. Hún út­skrif­að­ist sem kera­miklista­mað­ur frá Mynd­lista­skól­an­um í Reykja­vík árið 2018. Anna Gulla stund­aði nám í hatta­smíði við Til­lskär­araka­dem­in í Gauta­borg 2009-2011 og varð meist­ari í hatta­gerð 2021. Hún er hluti af hönn­un­art­víeyk­inu HAGE studio, sem legg­ur áherslu á nýt­ingu nátt­úru­legra hrá­efna í hatta­gerð, yf­ir­fatn­að og skúlp­túra.

Anna Wal­lenius (f. 1981) er hönn­uð­ur og kera­miklista­mað­ur. Hún er með sitt eig­ið kera­mik­stúd­íó sem stað­sett er í Hval­firði. Anna út­skrif­að­ist með BA gráðu í hönn­un frá Metropolia-há­skól­an­um í Hels­inki árið 2016 og sem kera­miklista­mað­ur frá Mynd­lista­skól­an­um í Reykja­vík árið 2018. Núna stund­ar hún meist­ara­nám í hönn­un við Lista­há­skóla Ís­lands.

Sýn­ing­in stend­ur til og með 1. ág­úst.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00