Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

    Á sýningunni er leikið með ólíka eiginleika efniviða, forma og hluta.

    Þeg­ar við búum okk­ur heim­ili mót­um við veggi, gólf og loft í rým­inu í lands­lag sem okk­ur lík­ar. Við fyll­um það af lit­um, áferð­um, form­um og minn­ing­um. Hús­næð­ið þarf auk þess að hafa nokk­uð nota­gildi til að mynda þarf að vera hægt að setjast þar nið­ur, elda mat og sofa. Við þurf­um líka rými fyr­ir hug­ann og flest kjós­um við að heim­il­ið sé enn­frem­ur fyr­ir hjartað og sál­ina. Heim­ili okk­ar get­ur ver­ið ná­kvæm­lega eins og okk­ur dett­ur í hug.

    Hlut­ir inn­an heim­il­is­ins hafa ákveðna eig­in­leika. Séu þeir fjölda­fram­leidd­ir eru eig­in­leik­ar þeirra bún­ir tak­mörk­um þeim sem vél­arn­ar sem fram­leiða þá hafa. Séu þeir hand­gerð­ir eru þeir háð­ir því valdi sem hend­ur og hug­ur hafa yfir efn­inu sem þeir eru bún­ir til úr. Á sýn­ing­unni mæt­ast ólík­ir eig­in­leik­ar. Hand­verk og sta­fræn tækni, list og hönn­un, leir og strá, við­ur og ull.

    Hug­mynda­vinna Hönnu Dís­ar hefst oft á því að skoð­að­ar eru bæk­ur og því rök­rétt að sýna í Lista­sal Mosó sem stað­sett­ur er inn af bóka­safni. Bæk­urn­ar sem hún skoð­ar eru oft­ar en ekki, alls ekk­ert tengd­ar þeim verk­efn­um sem hún hef­ur sett sér fyr­ir hend­ur. Það er betra að skoða eitt­hvað allt ann­að til að hreyfa við hug­mynd­un­um, máta þær við ólíka hluti og færa þær þann­ig um set.

    Í verkin not­ast Hanna Dís með­al ann­ars við end­urunn­in, sjálf­bær­an eða ís­lensk­an við í sam­tali við leir, tex­tíl og strá.

    Verkin eru sjálf­stætt fram­hald verka sem sýnd voru á Stockholm Furnit­ure fair í Sví­þjóð nú í fe­brú­ar en þau sem sýn­ing­unni tengjast verða einn­ig sýnd í sam­tali við ný verk.

    Sýn­ing­in er hluti af dagskrá Hönn­un­ar­mars en stend­ur frá 20. apríl til 17. maí.

    Vin­sam­leg­ast at­hug­ið að sýn­ing­in fylg­ir ekki al­menn­um opn­un­ar­tíma við­burða á Hönn­un­ar­mars.

    Opn­un­ar­tími:

    • Opið mán – fös 9:00 – 18:00
    • Laug­ar­daga: 12:00 – 16:00
    • Sunnu­daga: Lokað (ekki opið 28. apríl)
    • Lokað sum­ar­dag­inn fyrsta 25. apríl

    Verk­efn­ið er styrkt af Mynd­stef og Hönn­un­ar­sjóði.

    Sýn­ing­in er að hluta í sam­starfi við Húsa­smiðj­una á Höfn.

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán., þri., fim. 8:00-16:00
    mið. 8:00-18:00
    fös. 8:00-14:00