Breytingaskeiðið er meira en bara hitakóf og pirringur, sumar konur finna fyrir lífshamlandi einkennum sem geta ógnað framtíðarheilsu og atvinnuöryggi. Markmiðið er að fræða fólk, uppræta fordóma og útrýma tabúinu!
Halldóra Skúladóttir, breytingaskeiðsráðgjafi og markþjálfi mun heimsækja bókasafnið og fræða okkur um þetta óumflýjanlega skeið sem allar konur ganga í gegnum á einn eða annan hátt.