Bókaklúbbur ungmenna í Bókasafni Mosfellsbæjar hittist að jafnaði einu sinni í mánuði og er næsti hittingur mánudaginn 13. janúar kl. 17. Klúbburinn er opinn öllum á aldrinum 14-20 ára.
Bókaklúbburinn á að vera afslappað umhverfi til þess að kynnast öðrum lesendum á svipuðum aldri og spjalla um bækur og öllu því sem þeim viðkemur. Í bókaklúbbinum eru ekki lögð fyrir verkefni eða próf heldur er hann einungis hafður til skemmtunar. Ungmennin munu stjórna því sem verður lesið og hvernig hittingum bókaklúbbsins verður háttað.
Umsjón með klúbbnum hefur Ástrós Hind Rúnarsdóttir bókmenntafræðingur og þjónustufulltrúi í Bókasafni Mosfellsbæjar.