Vinabæir Mosfellsbæjar eru: Thisted í Danmörku, Uddevalla í Svíþjóð, Loimaa í Finnlandi og Skien í Noregi. Vinabæjakeðjan er sú elsta á Norðurlöndum og upphaf hennar voru samskipti milli Uddevalla og Thisted 1939.
Vinabæjasamskipti voru fyrst til umræðu hjá félagsdeild Norræna félagsins í Mosfellssveit árið 1975. Árið 1977 gekk sveitarstjórn frá vinabæjatengslum við Thisted í Danmörku, Skien í Noregi, Uddevalla í Svíþjóð og Loimaa í Finnlandi.
Árið 1982 varð Mosfellshreppur formlega aðili að vinabæjakeðjunni þegar fulltrúar hreppsins tóku þátt í vinabæjamóti í Skien í Noregi.
Með vinabæjasamstarfinu er leitast við að:
- Koma á góðu sambandi milli opinberra stofnana í vinabæjunum í því augnamiði að skiptast á faglegum fróðleik og efla samvinnu til hvatningar og endurnýjunar í daglegu starfi.
- Efla samskipti milli frjálsra félagasamtaka og stofnana í vinabæjunum.
- Koma á fót faglegum/pólitískum umræðugrunni svo embættismenn og pólitískir ráðamenn í vinabæjunum geti skipst á þekkingu og reynslu.
- Efla samskipti milli ungmenna í vinabæjunum, m.a. með þátttöku þeirra í vinabæjamótum.
- Byggja upp norrænt upplýsinganet fyrir faghópa sem eftir því óska.
Vinabæjamót
Vinabæjamót eru haldin annað hvert ár til skiptis í bæjunum. Frá því á vinabæjamóti í Skien í Noregi 1992 hafa þessi mót þróast í átt til faglegra samskipta þar sem starfsmenn og ábyrgðaraðilar bæjanna hittast í faglegum vinnuhópum, bera saman bækur sínar og kynnast kollegum sínum og verksviðum þeirra. Þannig hafa þátttakendur kynnst því hvernig unnið er í málaflokkum í vinabæjunum og einnig hafa myndast tengsl milli vinnustaða og einstaklinga sem nýtast á margan hátt.
Á þessum mótum eru einnig unglingahópar en síðustu árin hafa hafa krakkarnir sameinast í einn stóran þemahóp sem skiptist svo í þrjá minni hópa. Í stóra hópnum er fjallað um ákveðið málefni sem tengist unglingum.
Fyrir hönd Mosfellsbæjar hafa yfirleitt verið sendir þrír bæjarfulltrúar ásamt bæjarstjóra og ritara vinabæjasamstarfsins.
Vinabæjamót hafa verið haldin í Mosfellsbæ árin 1988, 1998, 2008 og 2018.