Markmið ráðgjafar er tvíþætt, annars vegar að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál og hins vegar að veita stuðning vegna félagslegs eða persónulegs vanda.
Haft er að leiðarljósi að styðja einstaklinga og fjölskyldur til sjálfshjálpar þannig að hver og einn geti notið sín sem best í samfélaginu.
Allir sem hafa náð 18 ára aldri og eiga lögheimili í Mosfellsbæ geta leitað ráðgjafar sér að kostnaðarlausu.
Umsókn
Þegar einstaklingur/fjölskylda hyggst sækja um þjónustu velferðarsviðs er lagt upp með að ráðgjöf sé fyrsta skrefið í þjónustuferlinu. Viðtal hjá ráðgjafa gæti verið forsenda þess að sú umsókn sem einstaklingur hyggst senda inn teljist gild.
Hvaða mál falla undir félagslega ráðgjöf?
Undir félagslega ráðgjöf falla m.a. eftirtalin atriði:
- Farsæld barna
- Fjárhagsvandi og fjármál
- Húsnæðisvandi
- Atvinnuleysi
- Samskipti innan fjölskyldna, meðal annars sambúðarvanda
- Uppeldismál og málefni barna og unglinga
- Hjónaskilnaðir og sambúðarslit
- Forsjár- og umgengnismál
- Ættleiðingarmál
- Afengis- og/eða vímuefnavandi
- Skert færni og/eða fötlun
- Aðstæður á efri árum
Ávallt er leitast við að veita ráðgjöfina í samhengi við önnur úrræði ef við á og tengja hana þjónustu annarra aðila eftir því sem hentar, svo sem skóla, heilsugæslustöðvar, sérhæfðrar ráðgjafar á borð við SÁÁ o.s.frv.