Mosfellsbær óskar eftir hæfum og áhugasömum aðilum til samstarfs um þróun og uppbyggingu á nýrri þjónustu- og aðkomubyggingu á íþróttasvæðinu að Varmá.
Leitað er að aðilum sem væru tilbúnir til að taka þátt í þróun, byggingu og/eða nýtingu á þjónustu- og aðkomubyggingunni.
Eingöngu er um markaðskönnun að ræða, þ.e. upplýsingaöflun um hugmyndir áhugasamra aðila á markaði hvað varðar nýtingu á svæðinu og hvernig hún fellur að þörfum og væntingum Mosfellsbæjar og Aftureldingar.
Ekki er tryggt að markaðskönnun leiði til útboðs og þátttaka í henni ekki talin forsenda þátttöku í síðara innkaupaferli/útboði.
Þjónustu- og aðkomubygging íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá:
- Þjónustu- og aðkomubygging verður nýtt af Mosfellsbæ og Aftureldingu. Byggingin getur að hámarki orðið 3.000 m2, en miðað við þarfagreining Mosfellsbæjar og Aftureldingar miðast við allt að 1.800 m2.
- Starfsemi sem kæmi til greina í þjónustu- og aðkomubyggingu er íþrótta- og heilsutengd starfsemi á borð við líkamsrækt, sjúkraþjálfun, verslun og veitingarekstur.