Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

11. ágúst 2023 kl. 07:00,
2. hæð Helgafell


Fundinn sátu

  • Valdimar Birgisson (VBi) formaður
  • Sævar Birgisson (SB) varaformaður
  • Ómar Ingþórsson (ÓI) aðalmaður
  • Haukur Örn Harðarson (HÖH) áheyrnarfulltrúi
  • Hjörtur Örn Arnarson (HÖA) varamaður
  • Ragnar Bjarni Zoega Hreiðarsson (RBH) varamaður
  • Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
  • Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi

Fundargerð ritaði

Árni Jón Sigfússon Byggingarfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

Fundargerðir til kynningar

  • 15. Af­greiðslufund­ur skipu­lags­full­trúa - 68202307010F

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

    Fund­ar­gerð lögð fram til kynn­ing­ar.

    • 15.1. Flugu­mýri 6 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1, 202304017

      Skipu­lags­full­trúi sam­þykkti á 67. fundi sín­um að grennd­arkynna um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi og bygg­ingaráform fyr­ir við­bygg­ingu at­vinnu­húss að Flugu­mýri 6, í sam­ræmi við gögn dags. 24.03.2023. Áformin voru kynnt á vef Mos­fells­bæj­ar, mos.is, og með grennd­arkynn­ing­ar­bréfi og gögn­um sem send voru til allra skráðra og þing­lýstra eig­enda hús­hluta og fasta­núm­era að Flugu­mýri 6 og 8. At­huga­semda­frest­ur var frá 12.05.2023 til og með 12.06.2023. Eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust.

      Niðurstaða þessa fundar:

      Lagt fram.

    • 15.2. Óskots­veg­ur 12 - Úlfars­fells­land 125531 - Um­sókn um bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi 202302182

      Skipu­lags­nefnd sam­þykkti á 590. fundi sín­um að aug­lýsa og kynna til­lögu að deili­skipu­lags­breyt­ingu vegna óbyggðra sum­ar­húsa­lóða við norð­an­vert Hafra­vatn lóð­ir L125531 og L204619 (Óskots­veg 12 og 14), í sam­ræmi við 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Breyt­ing­in fel­ur í sér aukn­ingu á bygg­ing­ar­magni tveggja lóða úr 70,0 m² í 90,0 m², sem þá verð­ur há­marks fer­metra­fjöldi á lóð fyr­ir frí­stunda­hús með eða án geymslu eða gesta­húss. Deili­skipu­lags­breyt­ing­in var fram­sett í skal­an­um 1:2000, unn­in af Arki­tekta­stof­unni Aust­ur­völl­ur, dags. 05.06.2023.
      Til­laga að breyt­ingu var kynnt og að­gengi­leg á vef sveit­ar­fé­lags­ins, mos.is, og aug­lýst með kynn­ing­ar­bréfi auk gagna sem send voru til aðliggj­andi land­eig­enda lóða L125530, L125523, L175250, L191851, L192886, L125533 og L209044. At­huga­semda­frest­ur var frá 13.06.2023 til og með 13.07.2023. Eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust.

      Niðurstaða þessa fundar:

      Lagt fram.

    • 15.3. Óskots­veg­ur 14 - Úlfars­fells­land 204619 - Um­sókn um bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi 202302181

      Skipu­lags­nefnd sam­þykkti á 590. fundi sín­um að aug­lýsa og kynna til­lögu að deili­skipu­lags­breyt­ingu vegna óbyggðra sum­ar­húsa­lóða við norð­an­vert Hafra­vatn lóð­ir L125531 og L204619 (Óskots­veg 12 og 14), í sam­ræmi við 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Breyt­ing­in fel­ur í sér aukn­ingu á bygg­ing­ar­magni tveggja lóða úr 70,0 m² í 90,0 m², sem þá verð­ur há­marks fer­metra­fjöldi á lóð fyr­ir frí­stunda­hús með eða án geymslu eða gesta­húss. Deili­skipu­lags­breyt­ing­in var fram­sett í skal­an­um 1:2000, unn­in af Arki­tekta­stof­unni Aust­ur­völl­ur, dags. 05.06.2023.
      Til­laga að breyt­ingu var kynnt og að­gengi­leg á vef sveit­ar­fé­lags­ins, mos.is, og aug­lýst með kynn­ing­ar­bréfi auk gagna sem send voru til aðliggj­andi land­eig­enda lóða L125530, L125523, L175250, L191851, L192886, L125533 og L209044. At­huga­semda­frest­ur var frá 13.06.2023 til og með 13.07.2023. Eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust.

      Niðurstaða þessa fundar:

      Lagt fram.

    • 15.4. Leiru­tangi 17A - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2, 202306580

      Borist hef­ur um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi frá Arn­ari Má Haf­þórs­syni, dags. 23.6.2023, fyr­ir við­bygg­ingu húss að Leiru­tanga 17A. Um er að ræða stækk­un stofu til suð­urs, við­bygg­ing sól­skála, um brúttó 13,2 m2, í sam­ræmi við gögn unn­in af PRV hönn­un dags. 11.06.2023

      Niðurstaða þessa fundar:

      Lagt fram.

    • 15.5. Leiru­tangi 17B - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2, 202306579

      Borist hef­ur um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi frá Krist­mundi Jóni Hjalta­syni, dags. 23.6.2023, fyr­ir við­bygg­ingu húss að Leiru­tanga 17A. Um er að ræða stækk­un stofu til suð­urs, við­bygg­ing sól­skála, um brúttó 13,2 m2, í sam­ræmi við gögn unn­in af PRV hönn­un dags. 11.06.2023

      Niðurstaða þessa fundar:

      Lagt fram.

    • 16. Af­greiðslufund­ur skipu­lags­full­trúa - 69202307018F

      Fundargerð lögð fram til kynningar.

      Fund­ar­gerð lögð fram til kynn­ing­ar.

      • 16.1. Hjarð­ar­land 1 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2, 202307062

        Borist hef­ur um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi frá Kristjáni Bjarna­syni, f.h. Hösk­uld­ar Þrá­ins­son­ar, dags. 05.07.2023, fyr­ir við­bygg­ingu, út­lits­breyt­ingu og stækk­un húss að Hjarð­ar­landi 1. Einnig er um að ræða lóða­frá­gang með stöll­un lóð­ar við suð­aust­ur gafl húss­ins auk út­lits­breyt­ing­ar vegna nýrra glugga. Nýr gluggi bæt­ist einnig við á geymslu neðri hæð­ar/kjall­ara bíl­skúrs og það rými skráð brúttó 43,1 m². Stækk­un skála neðri hæð­ar íbúð­ar­húss til suð­vest­urs, við­bygg­ing sól­skála und­ir svöl­um, er brúttó 13,4 m², í sam­ræmi við gögn unn­in af teikni­stof­unni Aust­ur­velli dags. 20.06.2023.
        Heild­ar­stærð húss verð­ur 367,2 m², nýt­ing­ar­hlut­fall lóð­ar 0,4.
        Er­ind­inu var vís­að til skipu­lags­full­trúa á 501. af­greiðslufundi bygg­ing­ar­full­trúa þar sem ekki er í gildi deili­skipu­lag fyr­ir svæð­ið.

        Niðurstaða þessa fundar:

        Lagt fram.

      • 17. Af­greiðslufund­ur bygg­ing­ar­full­trúa - 500202306021F

        Fundargerð lögð fram til kynningar.

        Fund­ar­gerð lögð fram til kynn­ing­ar.

        • 17.1. Bjark­ar­holt 17-29 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2, 202306153

          Hús­fé­lag Bjark­ar­holts 25-29 sæk­ir um leyfi til að byggja úr gleri og málmi svala­lok­an­ir á fjöl­býl­is­hús­um nr. 25, 27 og 29 á lóð­inni Bjark­ar­holt nr. 11-29 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.
          Stærð­ir breyt­ast ekki.

          Niðurstaða þessa fundar:

          Lagt fram.

        • 17.2. Bugðufljót 17 - Um­sókn um bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi 202103381

          BF17 ehf. Bílds­höfða 14 Reykja­vík sæk­ir um leyfi til breyt­inga áður sam­þykktra að­al­upp­drátta at­vinnu­hús­næð­is á lóð­inni Bugðufljót nr. 17 í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Breyt­ing fel­ur í sér ný milli­loft í rým­um 0101, 0102, 0104, 0105, 0107, 0108 og 0109. Stækk­un sam­tals 289,8 m².

          Niðurstaða þessa fundar:

          Lagt fram.

        • 17.3. Desja­mýri 2 - Um­sókn um bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi 202301462

          Matth­ías Bogi Hjálm­týs­son Vest­ur­fold 40 Reykja­vík sæk­ir um leyfi til breyt­inga áður sam­þykktra að­al­upp­drátta at­vinnu­hús­næð­is á lóð­inni Desja­mýri nr. 2 í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Stærð­ir breyt­ast ekki

          Niðurstaða þessa fundar:

          Lagt fram.

        • 17.4. Desja­mýri 13 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1, 202305851

          HDE ehf. Þórð­ar­sveig 20 Reykja­vík sæk­ir um leyfi til að byggja úr lím­tré og sam­loku­ein­ing­um at­vinnu­hús­næði á lóð­inni Desja­mýri nr. 13 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.
          Stærð­ir: 1.799,6 m², 11.982,7 m³.

          Niðurstaða þessa fundar:

          Lagt fram.

        • 17.5. Skelja­tangi 10 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2, 202304369

          Henný Rut Krist­ins­dótt­ir Skelja­tanga 10 sæk­ir um leyfi til að byggja við ein­býl­is­hús við­bygg­ingu úr timbri á lóð­inni Skelja­tangi nr. 10 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.
          Stækk­un: Íbúð 42,3 m², 103,6 m³.

          Niðurstaða þessa fundar:

          Lagt fram.

        • 18. Af­greiðslufund­ur bygg­ing­ar­full­trúa - 501202307014F

          Fundargerð lögð fram til kynningar.

          Fund­ar­gerð lögð fram til kynn­ing­ar.

          • 18.1. Bjark­ar­holt 17-29 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2, 202306027

            Hús­fé­lag Bjark­ar­holts 21-23 sæk­ir um leyfi til að byggja úr gleri og málmi svala­lok­an­ir á fjöl­býl­is­hús­um nr. 21 og 25 á lóð­inni Bjark­ar­holt nr. 11-29 í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Stærð­ir breyt­ast ekki.

            Niðurstaða þessa fundar:

            Lagt fram.

          • 18.2. Bugðufljót 13, Um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi. 201704034

            Hef­il­verk ehf. Jör­fa­lind 20 Kópa­vogi sækja um leyfi til breyt­inga áður sam­þykktra að­al­upp­drátta at­vinnu­hús­næð­is á lóð­inni Bugðufljót nr. 13 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.

            Niðurstaða þessa fundar:

            Lagt fram.

          • 18.3. Hamra­brekk­ur 18 - Um­sókn um bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi 202208699

            Júlí­us Bald­vin Helga­son Lang­holts­vegi 67 Reykja­vík sæk­ir um leyfi til breyt­inga áður sam­þykktra að­al­upp­drátta frí­stunda­húss á lóð­inni Hamra­brekk­ur nr. 18 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.
            Stærð­ir: 48,7 m², 166,2 m³.

            Niðurstaða þessa fundar:

            Lagt fram.

          • 18.4. Hjarð­ar­land 1 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2, 202307062

            Hösk­uld­ur Þrá­ins­son Hjarð­ar­landi 1 sæk­ir um leyfi til stækk­un­ar og út­lits­breyt­inga ein­býl­is­húss á tveim­ur hæð­um á lóð­inni Hjarð­ar­land nr. 1 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.
            Stækk­un Mhl 01 13,4 m².
            Stækk­un Mhl 02 43,1 m², 116,4 m³.

            Niðurstaða þessa fundar:

            Lagt fram.

          • 18.5. Óskots­veg­ur 12 - Úlfars­fells­land 125531 - Um­sókn um bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi - deili­skipu­lags­breyt­ing 202302182

            Emel­ía Blön­dal Mos­arima 45 Reykja­vík sæk­ir um leyfi til að byggja úr timbri frí­stunda­hús á einni hæð á lóð­inni Óskots­veg­ur nr. 12 í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Til­laga að breyt­ingu deili­skipu­lags var grennd­arkynnt, at­huga­semda­frest­ur var frá 13.06.2023 til og með 13.07.2023. Eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust.
            Stærð­ir: 90,0 m², 446,7 m³.

            Niðurstaða þessa fundar:

            Lagt fram.

          • 18.6. Óskots­veg­ur 14 - Úlfars­fells­land 204619 - Um­sókn um bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi 202302181

            Ólaf­ur Ein­ars­son Smár­arima 39 Reykja­vík sæk­ir um leyfi til að byggja úr timbri frí­stunda­hús á einni hæð á lóð­inni Óskots­veg­ur nr. 12 í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Til­laga að breyt­ingu deili­skipu­lags var grennd­arkynnt, at­huga­semda­frest­ur var frá 13.06.2023 til og með 13.07.2023. Eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust. Stærð­ir: 90,0 m², 446,7 m³.

            Niðurstaða þessa fundar:

            Lagt fram.

          • 18.7. Reykja­mel­ur 8 / Um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi 201504068

            Ómar Ás­gríms­son Reykja­mel 8 sæk­ir um leyfi til breyt­inga þak­burð­ar­virk­is ein­býl­is­húss á lóð­inni Reykja­mel­ur nr. 8 í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Stærð­ir breyt­ast ekki.

            Niðurstaða þessa fundar:

            Lagt fram.

          • 18.8. Snæfríð­ar­gata 30, Um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi. 201801280

            Skjald­ar­gjá ehf. Rauð­ar­ár­stíg 42 Reykja­vík sækja um leyfi til breyt­inga áður sam­þykktra að­al­upp­drátta ein­býl­is­húss á lóð­inni Snæfríð­ar­gata nr. 30, í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Stærð­ir breyt­ast ekki

            Niðurstaða þessa fundar:

            Lagt fram.

          • 18.9. Sölku­gata 8-10 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1, 202307037

            Sig­urð­ur Straum­fjörð Páls­son Sölku­götu 8 sæk­ir um leyfi til breyt­inga lóð­ar­frá­gangs par­húss á lóð­inni Sölku­gata nr. 8 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.

            Niðurstaða þessa fundar:

            Lagt fram.

          • 18.10. Úu­gata 21B Spenni­stöð - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1, 202305869

            Veit­ur ohf. Bæj­ar­hálsi 1 Reykja­vík sækja um leyfi til að byggja úr stein­steypu og stáli spenni­stöð á lóð­inni Úu­gata nr. 21B í sam­ræmi við fram­lögð gögn. Stærð­ir: 7,5 m², 20,3 m³.

            Niðurstaða þessa fundar:

            Lagt fram.

          Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 8:53