Mál númer 202404054
- 13. desember 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #622
Skipulagsnefnd samþykkti á 616. fundi sínum að kynna deiliskipulagsbreytingu við Skálahlíð í Hlíðahverfi, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan felur í sér að koma fyrir grenndarstöð í samræmi við áætlun um fjölgun grenndarstöðva og innleiðingu hringrásarhagkerfisins. Tillagan var auglýst og gögn gerð aðgengileg á vef Mosfellsbæjar, mos.is, Skipulagsgáttinni, Lögbirtingablaðinu og Mosfellingi. Athugasemdafrestur var frá 24.10.2024 til og með 08.12.2024. Engin umsögn barst.
Umsagnir lagðar fram til kynningar. Skipulagsnefnd samþykkir með fimm atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa áframhaldandi vinnu máls.
- 25. september 2024
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #857
Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu tillaga að deiliskipulagsbreytingu við Skálahlíð í Hlíðahverfi. Tillagan felur í sér að koma fyrir grenndarstöð í samræmi við áætlun um fjölgun grenndarstöðva og innleiðingu hringrásarhagkerfisins. Áætlunin var tekin fyrir og kynnt á 608. fundi nefndarinnar.
Afgreiðsla 616. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 857. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 20. september 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #616
Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu tillaga að deiliskipulagsbreytingu við Skálahlíð í Hlíðahverfi. Tillagan felur í sér að koma fyrir grenndarstöð í samræmi við áætlun um fjölgun grenndarstöðva og innleiðingu hringrásarhagkerfisins. Áætlunin var tekin fyrir og kynnt á 608. fundi nefndarinnar.
Skipulagsnefnd samþykkir með fimm atkvæðum að tillaga að breyttu deiliskipulagi verði kynnt og auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal kynnt með áberandi hætti í Mosfellingi, á vef sveitarfélagsins www.mos.is og gögn aðgengileg í Skipulagsgáttinni til umsagnar og athugasemda.