Mál númer 201712306
- 24. mars 2021
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #779
Kynning KPMG vegna endurskoðunar 2020.
Afgreiðsla 1481. fundar bæjarráðs samþykkt á 779. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 18. mars 2021
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1481
Kynning KPMG vegna endurskoðunar 2020.
Kynning KPMG á endurskoðun á samstæðuársreikningi Mosfellsbæjar fyrir árið 2020 lögð fram.
- 5. febrúar 2020
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #753
Endurnýjað bréf um lýsingu starfa endurskoðanda og ábyrgðar endurskoðanda lagt fram ásamt kynningu í upphafi endurskoðunar.
Afgreiðsla 1429. fundar bæjarráðs samþykkt á 753. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 23. janúar 2020
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1429
Endurnýjað bréf um lýsingu starfa endurskoðanda og ábyrgðar endurskoðanda lagt fram ásamt kynningu í upphafi endurskoðunar.
Endurnýjað bréf um lýsingu starfa endurskoðanda og ábyrgðar endurskoðanda samþykkt með 3 atkvæðum.
- 16. janúar 2019
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #731
Endurnýjað bréf um lýsing starfa endurskoðanda og ábyrgðar endurskoðanda lagt fram ásamt kynningu í upphafi endurskoðunar.
Afgreiðsla 1381. fundar bæjarráðs samþykkt á 731. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 10. janúar 2019
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1381
Endurnýjað bréf um lýsing starfa endurskoðanda og ábyrgðar endurskoðanda lagt fram ásamt kynningu í upphafi endurskoðunar.
Endurnýjað bréf um lýsingu starfa endurskoðanda og ábyrgðar endurskoðanda og kynning í upphafi endurskoðunar lögð fram á 1381. fundi bæjarráðs.
Bókun M-lista:
Miðflokkurinn leggur áherslu á að leitað verði tilboða frá öðrum endurskoðunarfyrirtækjum áður en tekin verði afstaða með að semja á ný við KPMG. Mikilvægt er að það liggi fyrir áætluð fjárhæð um kostnað vegna endurskoðunar og þóknanir.Bókun V- og D- lista:
Fyrir liggur samningur við KPMG um endurskoðun fyrir Mosfellsbæ, gert er ráð fyrir kostnaði vegna hans í fjárhagsáætlun ársins. Því er hér ekki verið að semja við fyrirtækið um endurskoðun heldur er fyrirtækið að leggja fram lýsingu á því hvernig staðið er faglega að endurskoðun. - 10. janúar 2018
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #708
Endurnýjað ráðningarbréf endurskoðanda lagt fram ásamt kynningu í upphafi endurskoðunar.
Afgreiðsla 1336. fundar bæjarráðs samþykkt á 708. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 4. janúar 2018
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1336
Endurnýjað ráðningarbréf endurskoðanda lagt fram ásamt kynningu í upphafi endurskoðunar.
Lagt fram.