Mál númer 201505017
- 6. mars 2019
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #734
Kynning á upplýsingariti til íbúa í Mosfellsbæ um vatnsvernd og verndun viðkvæmra vatnsfalla
Afgreiðsla 197. fundar umhverfisnefndar samþykkt á 734. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 21. febrúar 2019
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar #197
Kynning á upplýsingariti til íbúa í Mosfellsbæ um vatnsvernd og verndun viðkvæmra vatnsfalla
Umhverfisstjóri vakti athygli á kynningabæklingi um vatnsvernd og verndun viðkvæmra vatnsfalla sem aðgengilegur er á heimasíðu bæjarins og hefur verið sendur til íbúa.
Umhverfisnefnd hvetur til þess að íbúar verði minntir reglulega á mikilvægi mengunarvarna við heimahús. - 26. október 2016
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #681
Erindi varðandi upplýsingarit til íbúa um vatnsvernd tekið fyrir að ósk Úrsúlu Junemann.
Afgreiðsla 171. fundar umhverfisnefndar samþykkt á 681. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 13. október 2016
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar #171
Erindi varðandi upplýsingarit til íbúa um vatnsvernd tekið fyrir að ósk Úrsúlu Junemann.
Umhverfisstjóri kynnti bækling um vatnsvernd í Mosfellsbæ, sem dreift hefur verið til íbúa á ákveðnum svæðum. Ljóst er að vatnsvernd er mikilvæg og á erindi við alla íbúa. Æskilegt er að bæklingnum verði dreift í öll hús í bænum.
- 9. september 2015
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #655
Lögð fram til kynningar drög að upplýsingariti til íbúa vegna ofanvatnsmála nálægt viðkvæmum viðtökum.
Afgreiðsla 163. fundar umhverfisnefndar samþykkt á 655. fundi bæjarstjórnar með átta atkvæðum.
- 3. september 2015
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar #163
Lögð fram til kynningar drög að upplýsingariti til íbúa vegna ofanvatnsmála nálægt viðkvæmum viðtökum.
Drög að upplýsingariti vegna ofanvatnsmála lagt fram til kynningar.
Umhverfisnefnd fagnar gerð kynningarefnisins og hvetur til þess að ritið verði gefið út í bæklingsformi og dreift á heimili bæjarins. - 26. ágúst 2015
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #654
Drög að upplýsingariti til íbúa vegna ofanvatnsmála nálægt viðkvæmum viðtökum lögð fyrir bæjarráð til staðfestingar.
Afgreiðsla 1221. bæjarráðs lögð fram til kynningar á 654. fundi bæjarstjórnar.
- 23. júlí 2015
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1221
Drög að upplýsingariti til íbúa vegna ofanvatnsmála nálægt viðkvæmum viðtökum lögð fyrir bæjarráð til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir innihald og dreifingu upplýsingarits.