Mál númer 202407065
- 13. desember 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #622
Ágúst Hlynur Guðmundsson Reykholti sækir um leyfi til að byggja úr timbri gestahús á lóðinni Reykholt, L124940, í samræmi við framlögð gögn. Umsókn um byggingarheimild var grenndarkynnt frá 06.08.2024 til og með 05.09.2024. Ein athugasemd barst og hefur verið brugðist við henni. Stærðir: 39,1 m², 101,4 m³.
Lagt fram.
- 5. desember 2024
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa #536
Ágúst Hlynur Guðmundsson Reykholti sækir um leyfi til að byggja úr timbri gestahús á lóðinni Reykholt, L124940, í samræmi við framlögð gögn. Umsókn um byggingarheimild var grenndarkynnt frá 06.08.2024 til og með 05.09.2024. Ein athugasemd barst og hefur verið brugðist við henni. Stærðir: 39,1 m², 101,4 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
- 20. september 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #616
Skipulagsfulltrúi samþykkti á 82. fundi sínum að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform fyrir stakstætt hús til íbúðar á lóðinni að Reykholti L12940. Um er að ræða 35,0 m², einnar hæðar timburhús með tvíhalla þaki. Tillagan var kynnt og gögn höfð aðgengileg á vef sveitarfélagsins, mos.is, og auglýst með kynningarbréfi auk gagna, sem send voru til þinglýstra eigenda fasteigna og lóðar að Bræðratungu L123748. Athugasemdafrestur var frá 06.08.2024 til og með 05.09.2024. Athugasemd barst frá Torfa Magnússyni og Evu Sveinbjörnsdóttur að Bræðratungu, dags. 02.09.2024. Hjálögð er staðfesting umsækjanda, Ágústi Hlyn Guðmundssyni, að staðsetning húss innan lóðar verði fært til í samræmi við athugasemd.
Lagt fram.
- 16. september 2024
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa #84

Þar sem fyrir liggur staðfesting um viðbrögð athugasemda og niðurstaða um breytingu áforma, með vísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, 5.9.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, samþykkir skipulagsfulltrúi áformin. Byggingarfulltrúa er heimilt að afgreiða erindi og gefa út byggingarleyfi þegar að umsókn samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010, byggingarreglugerð nr. 112/2012 og gögn hafa verið uppfærð í samræmi við niðurstöðu.
- 23. ágúst 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #614
Ágúst Hlynur Guðmundsson sækir um leyfi til að byggja úr timbri stakstætt hús til íbúðar á lóðinni Reykholt nr.L124940 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 35,0 m², 67,2 m³.
Lagt fram.
- 23. ágúst 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #614
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi frá Ágústi Hlyn Guðmundssyni, f.h. Helga Kjartanssonar, fyrir stakstætt hús til íbúðar á lóðinni að Reykholti L12940. Um er að ræða 35,0 m², einnar hæðar timburhús með tvíhalla þaki, í samræmi við fundargerð byggingarfulltrúa og gögn. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa á 527. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem ekki er í gildi deiliskipulag fyrir lóðina.
Lagt fram.
- 1. ágúst 2024
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa #82
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi frá Ágústi Hlyn Guðmundssyni, f.h. Helga Kjartanssonar, fyrir stakstætt hús til íbúðar á lóðinni að Reykholti L12940. Um er að ræða 35,0 m², einnar hæðar timburhús með tvíhalla þaki, í samræmi við fundargerð byggingarfulltrúa og gögn. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa á 527. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem ekki er í gildi deiliskipulag fyrir lóðina.
Þar sem að ekki er í gildi deiliskipulag sem uppfyllir ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 samþykkir skipulagsfulltrúi, í samræmi við afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, að byggingarleyfisumsóknin skuli grenndarkynnt skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga á grundvelli ákvæða aðalskipulags Mosfellsbæjar. Fyrirliggjandi gögn skulu send aðliggjandi hagaðilum og þinglýstum eigendum fasteigna og lóðar að Bræðratungu L123748 til kynningar og athugasemda. Auk þess verða gögn aðgengileg á vef Mosfellsbæjar, mos.is.
- 26. júlí 2024
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa #527
Ágúst Hlynur Guðmundsson sækir um leyfi til að byggja úr timbri stakstætt hús til íbúðar á lóðinni Reykholt nr.L124940 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 35,0 m², 67,2 m³.
Vísað til umsagnar skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa
þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.