Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

16. september 2024 kl. 09:00,
í Kjarna


Fundinn sátu

  • Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Reyk­holt 124940 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1,202407065

    Skipulagsfulltrúi samþykkti á 82. fundi sínum að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform fyrir stakstætt hús til íbúðar á lóðinni að Reykholti L12940. Um er að ræða 35,0 m², einnar hæðar timburhús með tvíhalla þaki. Tillagan var kynnt og gögn höfð aðgengileg á vef sveitarfélagsins, mos.is, og auglýst með kynningarbréfi auk gagna, sem send voru til þinglýstra eigenda fasteigna og lóðar að Bræðratungu L123748. Athugasemdafrestur var frá 06.08.2024 til og með 05.09.2024. Athugasemd barst frá Torfa Magnússyni og Evu Sveinbjörnsdóttur að Bræðratungu, dags. 02.09.2024. Hjálögð er staðfesting umsækjanda, Ágústi Hlyn Guðmundssyni, að staðsetning húss innan lóðar verði fært til í samræmi við athugasemd.

    Þar sem fyr­ir ligg­ur stað­fest­ing um við­brögð at­huga­semda og nið­ur­staða um breyt­ingu áforma, með vís­an í 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, 5.9.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa í sam­þykkt­um um stjórn Mos­fells­bæj­ar, sam­þykk­ir skipu­lags­full­trúi áformin. Bygg­ing­ar­full­trúa er heim­ilt að af­greiða er­indi og gefa út bygg­ing­ar­leyfi þeg­ar að um­sókn sam­ræm­ist lög­um um mann­virki nr. 160/2010, bygg­ing­ar­reglu­gerð nr. 112/2012 og gögn hafa verið uppfærð í samræmi við niðurstöðu.

    • 2. Hamra­brekk­ur 3 - Um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi202407009

      Skipulagsfulltrúi samþykkti á 82. fundi sínum að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform vegna nýbyggingar frístundahúss að Hamrabrekkum 3. Um er að ræða 130,0 m² tveggja hæða hús úr steinsteypu og timbri. Tillagan var kynnt og gögn höfð aðgengileg á vef sveitarfélagsins, mos.is, og auglýst með kynningarbréfi auk gagna, sem send voru til þinglýstra eigenda lóða að Hamrabrekkum 2, 3, 4, 5, 6 og 7. Athugasemdafrestur var frá 07.08.2024 til og með 06.09.2024. Engar athugasemdir bárust.

      Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við kynnt áform, með vís­an í 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, 5.9.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa í sam­þykkt­um um stjórn Mos­fells­bæj­ar, sam­þykk­ir skipu­lags­full­trúi áformin. Bygg­ing­ar­full­trúa er heim­ilt að af­greiða er­indi og gefa út bygg­ing­ar­leyfi þeg­ar að um­sókn sam­ræm­ist lög­um um mann­virki nr. 160/2010, bygg­ing­ar­reglu­gerð nr. 112/2012 og kynnt­um gögn­um.

    Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15