Mál númer 202403511
- 23. ágúst 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #614
Sólveig Ragna Guðmundsdóttir Arnartanga 55 sækir um leyfi til að byggja við anddyri raðhúss á lóðinni Arnartangi nr. 55 í samræmi við framlögð gögn. Umsókn um byggingarleyfi var grenndarkynnt, grenndarkynningu lauk 31.07.2024, engar athugasemdir bárust. Stækkun: 3,5 m², 15,8 m³.
Lagt fram.
- 23. ágúst 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #614
Skipulagsfulltrúi samþykkti á 78. fundi sínum að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform vegna stækkunar húss að Arnartanga 55. Um er að ræða 3,5 m² anddyri raðhúss, í samræmi við gögn. Tillagan var kynnt og gögn höfð aðgengileg á vef sveitarfélagsins, mos.is, og auglýst með kynningarbréfi auk gagna, sem send voru til þinglýstra eigenda fasteigna og lóða að Arnartanga 57, 59, 61 og 63 til kynningar og athugasemda. Athugasemdafrestur var frá 02.07.2024 til og með 31.07.2024. Engar athugasemdir bárust.
Lagt fram.
- 2. ágúst 2024
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa #528
Sólveig Ragna Guðmundsdóttir Arnartanga 55 sækir um leyfi til að byggja við anddyri raðhúss á lóðinni Arnartangi nr. 55 í samræmi við framlögð gögn. Umsókn um byggingarleyfi var grenndarkynnt, grenndarkynningu lauk 31.07.2024, engar athugasemdir bárust. Stækkun: 3,5 m², 15,8 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
- 1. ágúst 2024
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa #82
Skipulagsfulltrúi samþykkti á 78. fundi sínum að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform vegna stækkunar húss að Arnartanga 55. Um er að ræða 3,5 m² anddyri raðhúss, í samræmi við gögn. Tillagan var kynnt og gögn höfð aðgengileg á vef sveitarfélagsins, mos.is, og auglýst með kynningarbréfi auk gagna, sem send voru til þinglýstra eigenda fasteigna og lóða að Arnartanga 57, 59, 61 og 63 til kynningar og athugasemda. Athugasemdafrestur var frá 02.07.2024 til og með 31.07.2024. Engar athugasemdir bárust.
Þar sem engar athugasemdir bárust við kynnt áform, með vísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, 5.9.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, samþykkir skipulagsfulltrúi áformin og er byggingarfulltrúa heimilt að afgreiða erindi og gefa út byggingarleyfi þegar að umsókn samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010, byggingarreglugerð nr. 112/2012 og kynntum gögnum.
- 17. maí 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #611
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi frá Sólveigu Rögnu Guðmundsdóttur vegna stækkunar húss að Arnartanga 55. Um er að ræða 3,5 m² anddyri raðhúss, í samræmi við gögn. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa á 517. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem ekki er í gildi deiliskipulag fyrir lóðina.
Lagt fram.
- 6. maí 2024
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa #78
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi frá Sólveigu Rögnu Guðmundsdóttur vegna stækkunar húss að Arnartanga 55. Um er að ræða 3,5 m² anddyri raðhúss, í samræmi við gögn. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa á 517. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem ekki er í gildi deiliskipulag fyrir lóðina.
Þar sem að ekki er í gildi deiliskipulag sem uppfyllir ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 samþykkir skipulagsfulltrúi, í samræmi við afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, að byggingarleyfisumsóknin skuli grenndarkynnt skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga á grundvelli ákvæða aðalskipulags Mosfellsbæjar. Fyrirliggjandi gögn skulu send hagaðilum og þinglýstum eigendum lóða og landa að Arnartanga 57, 59, 61 og 63 til kynningar og athugasemda. Auk þess verða gögn aðgengileg á vef Mosfellsbæjar, mos.is.
- 12. apríl 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #609
Sólveig Ragna Guðmundsdóttir Arnartanga 55 sækir um leyfi til að byggja við anddyri raðhúss á lóðinni Arnartangi nr. 55 í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: 3,5 m², 15,8 m³.

- 21. mars 2024
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa #517
Sólveig Ragna Guðmundsdóttir Arnartanga 55 sækir um leyfi til að byggja við anddyri raðhúss á lóðinni Arnartangi nr. 55 í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: 3,5 m², 15,8 m³.
Vísað til umsagnar skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa
þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.