Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

6. maí 2024 kl. 09:45,
í Kjarna


Fundinn sátu

  • Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Hamra­brekk­ur 10 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1,202311218

    Skipu­lags­nefnd sam­þykkti á 604. fundi sín­um að grenndarkynna bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi fyr­ir 129,3 m² tveggja hæða steinsteyptu frístundahúsí Hamrabrekkum 10 í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Áformin voru kynnt með kynn­ing­ar­bréfi og gögn­um sem send voru aðliggjandi hagaðilum og þinglýstum eigendum lóða og landa að Hamrabrekkum, 5, 6, 8, 9, 11, 13, 14 og 15. Gögn voru að­gengi­leg á vef. At­huga­semda­frest­ur var frá 28.02.2024 til og með 02.04.2024. Eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust.

    Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við kynnt áform, með vís­an í 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, teljast áformin sam­þykkt og er bygg­ing­ar­full­trúa heim­ilt að gefa út bygg­ing­ar­leyfi þeg­ar að um­sókn sam­ræm­ist lög­um um mann­virki nr. 160/2010, bygg­ing­ar­reglu­gerð nr. 112/2012 og kynntum gögnum.

    • 2. Arn­ar­tangi 55 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1,202403511

      Borist hefur umsókn um byggingarleyfi frá Sólveigu Rögnu Guðmundsdóttur vegna stækkunar húss að Arnartanga 55. Um er að ræða 3,5 m² anddyri raðhúss, í samræmi við gögn. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa á 517. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem ekki er í gildi deiliskipulag fyrir lóðina.

      Þar sem að ekki er í gildi deili­skipu­lag sem upp­fyll­ir ákvæði skipu­lagslaga nr. 123/2010 og skipu­lags­reglu­gerð­ar nr. 90/2013 sam­þykk­ir skipu­lags­full­trúi, í sam­ræmi við af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa í sam­þykkt­um um stjórn Mos­fells­bæj­ar, að bygg­ing­ar­leyf­is­um­sókn­in skuli grennd­arkynnt skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. skipu­lagslaga á grundvelli ákvæða aðalskipulags Mosfellsbæjar. Fyrirliggjandi gögn skulu send hagaðilum og þinglýstum eigendum lóða og landa að Arnartanga 57, 59, 61 og 63 til kynningar og athugasemda. Auk þess verða gögn aðgengileg á vef Mosfellsbæjar, mos.is.

      Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00