Mál númer 202312112
- 12. apríl 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #609
Tómas Boonchang sækir um leyfi til að byggja við einbýlishús á lóðinni Bergholt nr. 2 viðbyggingu úr timbri í samræmi við framlögð gögn. Tillaga að breytingu var grenndarkynnt og gögn höfð aðgengileg á vef sveitarfélagsins, mos.is, og auglýst með kynningarbréfi auk gagna sem send voru til þinglýstra eigenda að Bergholti 1, 2, 3, 4, Brattholti 1, 3 og Barrholti 1, 3 og 5. Athugasemdafrestur var frá 13.02.2024 til og með 14.03.2024. Engar athugasemdir bárust. Stækkun 22,7 m², 62,2 m³.
Lagt fram.
- 15. mars 2024
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa #515
Tómas Boonchang sækir um leyfi til að byggja við einbýlishús á lóðinni Bergholt nr. 2 viðbyggingu úr timbri í samræmi við framlögð gögn. Tillaga að breytingu var grenndarkynnt og gögn höfð aðgengileg á vef sveitarfélagsins, mos.is, og auglýst með kynningarbréfi auk gagna sem send voru til þinglýstra eigenda að Bergholti 1, 2, 3, 4, Brattholti 1, 3 og Barrholti 1, 3 og 5. Athugasemdafrestur var frá 13.02.2024 til og með 14.03.2024. Engar athugasemdir bárust. Stækkun 22,7 m², 62,2 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
- 15. mars 2024
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa #77
Skipulagsnefnd samþykkti á 604. fundi sínum að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform vegna viðbyggingar einbýlishúss að Bergholti 2. Um er að ræða 22,7 m² stækkun úr timbri, í samræmi við gögn unnin af Helga Hafliðasyni, arkitekt FAÍ, dags. 07.12.2023. Tillaga að breytingu var kynnt og gögn höfð aðgengileg á vef sveitarfélagsins, mos.is, og auglýst með kynningarbréfi auk gagna sem send voru til þinglýstra eigenda að Bergholti 1, 2, 3, 4, Brattholti 1, 3 og Barrholti 1, 3 og 5. Athugasemdafrestur var frá 13.02.2024 til og með 14.03.2024. Engar athugasemdir bárust.
Þar sem engar athugasemdir bárust við kynnt áform, með vísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, samþykkir skipulagsfulltrúi áformin og er byggingarfulltrúa heimilt að afgreiða erindi og gefa út byggingarleyfi þegar að umsókn samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010, byggingarreglugerð nr. 112/2012 og kynntum gögnum.
- 24. janúar 2024
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #843
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi frá Tómasi Boonchang vegna viðbyggingar einbýlishúss að Bergholti 2. Um er að ræða 22,7 m² stækkun úr timbri í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa eða skipulagsnefndar á 509. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á staðnum.
Afgreiðsla 604. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 843. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 19. janúar 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #604
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi frá Tómasi Boonchang vegna viðbyggingar einbýlishúss að Bergholti 2. Um er að ræða 22,7 m² stækkun úr timbri í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa eða skipulagsnefndar á 509. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á staðnum.
Þar sem að ekki er í gildi deiliskipulag sem uppfyllir ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 samþykkir skipulagsnefnd með 5 atkvæðum að byggingarleyfisumsóknin skuli grenndarkynnt skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Fyrirliggjandi gögn skulu send aðliggjandi hagaðilum og þinglýstum eigendum húsa að Bergholti 1, 3, 4, Brattholti 1, 3 og Barrholti 1, 3 og 5 til kynningar og athugasemda. Auk þess verða gögn aðgengileg á vef Mosfellsbæjar, mos.is.
- 15. desember 2023
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #603
Tómas Boonchang sækir um leyfi til að byggja við einbýlishús á lóðinni Bergholt nr. 2 viðbyggingu úr timbri í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Stækkun 22,7 m², 62,2 m³.
- 7. desember 2023
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa #509
Tómas Boonchang sækir um leyfi til að byggja við einbýlishús á lóðinni Bergholt nr. 2 viðbyggingu úr timbri í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Stækkun 22,7 m², 62,2 m³.
Vísað til umsagnar skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa
þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.