Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

15. mars 2024 kl. 09:45,
í Kjarna


Fundinn sátu

  • Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Ak­ur­holt 21 - Um­sókn um bygg­ingaráform og bygg­ing­ar­leyfi202111108

    Skipulagsnefnd samþykkti á 603. fundi sínum að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform vegna frekari stækkunar viðbyggingar húss að Akurholti 21. Stækkun er á steinsteyptri viðbyggingu á einni hæð um brúttó 25,9 m², í samræmi við gögn unnin af Klöpp Arkitektar-Verkfærðingar ehf., dags. júní 2023. Tillaga að breytingu var kynnt og gögn höfð aðgengileg á vef sveitarfélagsins, mos.is, og auglýst með kynningarbréfi auk gagna sem send voru til þinglýstra eigenda að Akurholti 15, 17, 19, 20, 21 og Arnartanga 40. Athugasemdafrestur var frá 06.02.2024 til og með 07.03.2024. Engar athugasemdir bárust.

    Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við kynnt áform, með vís­an í 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, samþykkir skipulagsfulltrúi áformin og er bygg­ing­ar­full­trúa heim­ilt að afgreiða erindi og gefa út bygg­ing­ar­leyfi þeg­ar að um­sókn sam­ræm­ist lög­um um mann­virki nr. 160/2010, bygg­ing­ar­reglu­gerð nr. 112/2012 og kynntum gögnum.

  • 2. Berg­holt 2 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2,202312112

    Skipulagsnefnd samþykkti á 604. fundi sínum að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform vegna viðbyggingar einbýlishúss að Bergholti 2. Um er að ræða 22,7 m² stækkun úr timbri, í samræmi við gögn unnin af Helga Hafliðasyni, arkitekt FAÍ, dags. 07.12.2023. Tillaga að breytingu var kynnt og gögn höfð aðgengileg á vef sveitarfélagsins, mos.is, og auglýst með kynningarbréfi auk gagna sem send voru til þinglýstra eigenda að Bergholti 1, 2, 3, 4, Brattholti 1, 3 og Barrholti 1, 3 og 5. Athugasemdafrestur var frá 13.02.2024 til og með 14.03.2024. Engar athugasemdir bárust.

    Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við kynnt áform, með vís­an í 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, samþykkir skipulagsfulltrúi áformin og er bygg­ing­ar­full­trúa heim­ilt að afgreiða erindi og gefa út bygg­ing­ar­leyfi þeg­ar að um­sókn sam­ræm­ist lög­um um mann­virki nr. 160/2010, bygg­ing­ar­reglu­gerð nr. 112/2012 og kynntum gögnum.

Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00