Mál númer 202201171
- 17. ágúst 2022
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #809
Meðfylgjandi er minnisblað umhverfissviðs Mosfellsbæjar vegna opnunarfundar á þjónustubyggingu við íþróttahúsið að Varmá.
Afgreiðsla 1540. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar á 809. fundi bæjarstjórnar.
- 30. júní 2022
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1540
Meðfylgjandi er minnisblað umhverfissviðs Mosfellsbæjar vegna opnunarfundar á þjónustubyggingu við íþróttahúsið að Varmá.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum að útboði á þjónustubyggingu að Varmá verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2023. Bæjarfulltrúar D lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
***
Bókun D lista:
Fulltrúar D-lista í bæjarráði Mosfellsbæjar lýsa yfir miklum vonbrigðum með frestun á aðkallandi byggingu þjónustu og aðstöðuhúss að Varmá um eitt ár eða lengri tíma.Það hefði verið mjög auðvelt að fara í samningskaupaleið um byggingu hússins þar sem ekkert tilboð barst í útboðinu og halda þar með áætlun um byggingu húsins.
Bókun B, S og C lista:
Í ljósi þess að engin tilboð bárust í þjónustubyggingu við íþróttamiðstöðina að Varmá var tekin sú ákvörðun í samráði við samráðsvettvang Mosfellsbæjar og Aftureldingar að endurskoða umfang væntanlegrar þjónustubyggingar í samræmi við málefnasamning B, S og C lista. Er sú vinna þegar hafin. - 4. maí 2022
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #804
Ósk um heimild til útboðs á fullnaðarfrágangi þjónustubyggingar Íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá.
Afgreiðsla 1533. fundar bæjarráðs samþykkt á 804. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 28. apríl 2022
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1533
Ósk um heimild til útboðs á fullnaðarfrágangi þjónustubyggingar Íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum að boðin verði út jarðvinna, uppsteypa og fullnaðarfrágangur á fyrirhugaðri Þjónustubyggingu við Íþróttamiðstöðina að Varmá.
- 23. febrúar 2022
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #799
Kynning á Þjónustubyggingu við Íþróttamiðstöðina að Varmá -
Afgreiðsla 251. fundar íþrótta- og tómstundanefndar samþykkt á 799. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 10. febrúar 2022
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar #251
Kynning á Þjónustubyggingu við Íþróttamiðstöðina að Varmá -
Á fundinn mætti Hildur Freysdóttir verkefnastjóri á umhverfissviði og kynnti drög að teikningum vegna nýrrar þjónustubyggingar við Íþróttamiðstöðina að Varmá.