Mál númer 202008817
- 21. apríl 2021
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #781
Óskað er eftir að hluti reiðleiðar Ístakshrings verði færður til.
Afgreiðsla 538. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 781. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 9. apríl 2021
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #538
Óskað er eftir að hluti reiðleiðar Ístakshrings verði færður til.
Lagt fram og kynnt.
- 16. september 2020
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #767
Borist hefur erindi frá Hákoni Hákonarsyni, f.h. Hestamannafélagsins Harðar, dags. 24.08.2020, með ósk um tilfærslu á reiðstíg á svokölluðum Ístakshring, frá Tungubökkum að Oddsbrekkum í samræmi við hjálagða loftmynd. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.
Afgreiðsla 522. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 767. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 11. september 2020
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #522
Borist hefur erindi frá Hákoni Hákonarsyni, f.h. Hestamannafélagsins Harðar, dags. 24.08.2020, með ósk um tilfærslu á reiðstíg á svokölluðum Ístakshring, frá Tungubökkum að Oddsbrekkum í samræmi við hjálagða loftmynd. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.
Bókun fulltrúa M-lista:
Tilkoma þessa erindis virðist vera vegna þess að reiðstígur er ekki nýtanlegur vegna óheimila umsvifa á svæðinu er skerða m.a. umferð hestamanna. Fulltrúi Miðflokksins er jákvæður gagnvart þessu erindi en áréttar hér með ærna ástæðu þess að það þurfi nýjan og greiðfærari reiðstíg.Skipulagsnefnd vísar erindinu til endurskoðunar aðalskipulags í samræmi við annað erindi Hestamannafélagsins um endurskoðun reiðstíga í sveitarfélaginu.
Skipulagsnefnd felur jafnframt umhverfissviði að ræða við Ístak og Hestamannafélagið Hörð um lagfæringu núverandi reiðstígs. - 2. september 2020
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #766
Borist hefur erindi frá Hákoni Hákonarsyni, f.h. Hestamannafélagsins Harðar, dags. 24.08.2020, með ósk um tilfærslu á reiðstíg á svokölluðum Ístakshring, frá Tungubökkum að Oddsbrekkum í samræmi við hjálagða loftmynd.
Afgreiðsla 521. fundar bskipulagsnefndar samþykkt á 766. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 28. ágúst 2020
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #521
Borist hefur erindi frá Hákoni Hákonarsyni, f.h. Hestamannafélagsins Harðar, dags. 24.08.2020, með ósk um tilfærslu á reiðstíg á svokölluðum Ístakshring, frá Tungubökkum að Oddsbrekkum í samræmi við hjálagða loftmynd.
Frestað vegna tímaskorts