Mál númer 201701080
- 17. maí 2017
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #695
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi var auglýst frá 21. mars til og með 2. maí 2017. Engar athugasemdir bárust.
Afgreiðsla 18 afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa lögð fram til kynningar á 695. fundi bæjarstjórnar.
- 12. maí 2017
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #436
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi var auglýst frá 21. mars til og með 2. maí 2017. Engar athugasemdir bárust.
- 8. mars 2017
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #690
Á 429. fundi skipulagsnefndar 31. janúar 2017 var gerð eftirfarandi bókun: "Nefndin heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi." Lagður fram deiliskipulagsbreytingaruppdráttur.
Afgreiðsla 431. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 690. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 27. febrúar 2017
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #431
Á 429. fundi skipulagsnefndar 31. janúar 2017 var gerð eftirfarandi bókun: "Nefndin heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi." Lagður fram deiliskipulagsbreytingaruppdráttur.
Nefndin samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
- 8. febrúar 2017
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #688
Borist hefur erindi frá Sæmundi Óskarssyni dags. 3. janúar 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina að Reykjahvoli 8.
Afgreiðsla 429. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 688. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 31. janúar 2017
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #429
Borist hefur erindi frá Sæmundi Óskarssyni dags. 3. janúar 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina að Reykjahvoli 8.
Nefndin heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi.