12. júní 2025 kl. 07:30,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Halla Karen Kristjánsdóttir (HKK) formaður
- Lovísa Jónsdóttir (LJó) varaformaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Anna Sigríður Guðnadóttir (ASG) aðalmaður
- Rúnar Bragi Guðlaugsson (RBG) aðalmaður
- Dagný Kristinsdóttir (DK) áheyrnarfulltrúi
- Regína Ásvaldsdóttir (RÁ) bæjarstjóri
- Ómar Karl Jóhannesson skrifstofa bæjarlögmanns
Fundargerð ritaði
Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir upplýsinga- og skjalastjóri
Í upphafi fundar var samþykkt mað taka inn nýtt mál á dagskrá og verður það dagskrárliður nr. 1 og raðast önnur mál þar á eftir. Einnig samþykkt að málið Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins verði tekið af dagskrá.
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Úthlutun lóðarinnar Langitangi 9-13 - tillaga um afbrigði202504416
Opnun tilboða í byggingarrétt fjölbýlishúsalóðarinnar Langatanga 9-13.
Opnun tilboða í byggingarrétt fjölbýlishúsalóðarinnar Langatanga 9-13. Á fundinum voru framkomin tilboð í lóðirnar opnuð. Alls bárust 7 tilboð. Tilboðin verða tekin til afgreiðslu á fundi bæjarráðs þegar þau hafa verið skráð og flokkuð nánar.
2. 5. áfangi Helgafellshverfis - úthlutun lóða Úugötu202212063
Niðurstaða viðbótarlóðaúthlutunar við Úugötu kynnt.
Lagt fram og kynnt.
3. Ráðning leikskólastjóra leikskólans Huldubergs202505016
Tillaga um ráðningu leikskólastjóra leikskólans Huldubergs.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að ráða Jónu Rún Gísladóttur í stöðu leikskólastjóra leikskólans Huldubergs og býður hana velkomna til starfa. Þá þakkar bæjarráð Þuríði Stefánsdóttur fráfarandi leikskólastjóra fyrir farsæl störf að skólamálum í Mosfellsbæ undanfarin 26 ár.
Gestir
- Ólöf Kristín Sívertsen, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
4. Rammasamningur um jarðvinnu202403698
Óskað er heimildar bæjarráðs til að ganga til samninga við þrjá lægstbjóðendur í útboðinu Rammasamningur um jarðvinnu, sem opnað var 12. maí 2025
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila umhverfissviði að ganga til samninga við þrjá lægstbjóðendur í útboðinu Rammasamningur um jarðvinnu, að því gefnu að skilyrði útboðsgagna hafi verið uppfyllt, í samræmi við fyrirliggjandi tillögu.
Vakin er athygli á því að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um framangreinda ákvörðun.
Gestir
- Jóhanna Björg Hansen, sviðsstjóri umhverfissviðs
5. Gatnagerð og malbikun 2025 - Yfirlagnir, viðgerðir gatna202506227
Óskað er heimildar að ráðast í yfirlagnir og viðgerðir gatna á árinu 2025 í samræmi við framlagða tillögu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að farið verði í yfirlagnir og viðgerðir gatna í samræmi við framlagða tillögu en áætlaður kostnaður er 86,7 m.kr.
Yfirlögn malbiks rúmast innan 90 m.kr. fjárfestingaráætlunar ársins 2025.Gestir
- Jóhanna Björg Hansen, sviðsstjóri umhverfissviðs
6. Dæluhús í Helgafellshverfi, Nýframkvæmd202505694
Óskað er heimildar bæjarráðs til að fara í útboð á uppbyggingu dæluhúss í Helgafellshverfi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum fyrirliggjandi tillögu um að heimilað verði að fara í útboð á uppbyggingu dæluhúss í Helgafellshverfi í samræmi við framlagða tillögu.
Gestir
- Jóhanna Björg Hansen, sviðsstjóri umhverfissviðs
7. Leyfi fyrir rekstri á stöðvalausri deilileigu fyrir rafskútur í Mosfellsbæ202305240
Tillaga um að bæjarráð samþykki samstarfsyfirlýsingu Mosfellsbæjar og Hopp fyrir sumarið 2025.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum samstarfsyfirlýsingu Mosfellsbæjar og Hopp fyrir sumarið 2025 í samræmi við fyrirliggjandi tillögu.
Gestir
- Jóhanna Björg Hansen, sviðsstjóri umhverfissviðs
8. Hlégarðstún, Háholt, umsagnarbeiðni vegna tímabundins tækifærisleyfis202505050
Umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu varðandi umsókn Arons Vals Gunnlaugssonar um tækifærisleyfi vegna dansleiks á Hlégarðstúni.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gera ekki athugasemd við fyrirliggjandi beiðni um tímabundið tækifærisleyfi vegna skemmtunarinnar Brekkusöngur og sumarball þann 15. ágúst 2025, að því gefnu að skemmtunin verði haldin í Ævintýragarðinum og að þeim skilyrðum uppfylltum sem tilgreind eru í fyrirliggjandi tillögu.
9. Korputún 31-41 - aðal- og deiliskipulagsbreyting202504126
Kynning á tillögu Reita. Málið tekið fyrir á 630. fundi skipulagsnefndar og vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til bæjarstjóra til frekari úrvinnslu.
Gestir
- Kristinn Pálsson, skipulagsfulltrúi
10. Skýrslur vegna verkefna sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2024202506223
Skýrslur og kynningarglærur vegna þriggja sóknaráætlunarverkefna sem hafa verið teknar til kynningar og umræðu á fundum sjórnar SSH lagðar fram og kynntar.
Lagt fram og kynnt.
- Fylgiskjal030625 Fylgibréf til sveitarfélaga_Skýrslur og kynningar vegna sóknaráætlunarverkefna.pdfFylgiskjal3. Skýrsla um viðmið um forvarnir og geðrækt fyrir ungmenni á höfuðborgarsvæðinu.pdfFylgiskjal4. Kynningarglærur um forvarnir og geðrækt fyrir ungmenni á höfuðborgarsvæðinu,.pdfFylgiskjal6. Kynningarglærur um þróun Hvítá-Hvítár svæðisins.pdf
11. Stöðuskýrsla um innleiðingu Árósarsamningsins202412358
Erindi frá Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytinu þar sem vakin er athygli á uppfærslu á skýrsludrögum um stöðu innleiðingar Árósarsamningsins hér á landi. Umsagnarfrestur um drögin er til 30. júní nk.
Lagt fram og kynnt.
12. Skipulag skógræktar - leiðbeiningar um val á landi til skógræktar202506236
Erindi frá Vín, vina íslenskrar náttúru, varðandi skipulag skógræktar.
Lagt fram og kynnt.