Mál númer 202401629
- 1. mars 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #607
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi frá Jakobi Emil Líndal, f.h. Arnarbakka ehf, fyrir íbúðarhús að Hlíðartúni 2A-2B. Um er að ræða steinsteypt einnar hæðar parhús, Hlíðartún 2A, 122,0 m² og Hlíðartún 2B, 131,9 m², í samræmi við gögn. Um er að ræða breytt áform frá grenndarkynningu sömu lóðar, dags. 19.01.2023. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa á 513. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem ekki er í gildi deiliskipulag fyrir lóðina.
Lagt fram.
- 1. mars 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #607
Arnarbakki ehf. Huldubraut 48 Kópavogi sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu parhús á einni hæð á lóðinni Hlíðartún nr. 2A og 2B, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Hlíðartún 2A: Íbúð 122,0 m², 366,54 m³. Hlíðartún 2B: Íbúð 131,9 m², 401,36 m³.
Lagt fram.
- 27. febrúar 2024
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa #75
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi frá Jakobi Emil Líndal, f.h. Arnarbakka ehf, fyrir íbúðarhús að Hlíðartúni 2A-2B. Um er að ræða steinsteypt einnar hæðar parhús, Hlíðartún 2A, 122,0 m² og Hlíðartún 2B, 131,9 m², í samræmi við gögn. Um er að ræða breytt áform frá grenndarkynningu sömu lóðar, dags. 19.01.2023. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa á 513. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem ekki er í gildi deiliskipulag fyrir lóðina.
Þar sem að ekki er í gildi deiliskipulag sem uppfyllir ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 samþykkir skipulagsfulltrúi, í samræmi við afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, að byggingarleyfisumsóknin skuli grenndarkynnt skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Fyrirliggjandi gögn skulu send aðliggjandi hagaðilum og þinglýstum eigendum húsa að Hlíðartúni 2, 2A-B, Aðaltúni 6, 8, 10, 12, 14, 16 og Lækjartúni 1 til kynningar og athugasemda. Auk þess verða gögn aðgengileg á vef Mosfellsbæjar, mos.is.
- 16. febrúar 2024
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa #513
Arnarbakki ehf. Huldubraut 48 Kópavogi sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu parhús á einni hæð á lóðinni Hlíðartún nr. 2A og 2B, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Hlíðartún 2A: Íbúð 122,0 m², 366,54 m³. Hlíðartún 2B: Íbúð 131,9 m², 401,36 m³.
Vísað til umsagnar skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa
þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.