Mál númer 202212015
- 1. febrúar 2023
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #820
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi, frá Ingiþór Björnssyni, f.h. Samhjálpar, fyrir 49,8 m² kapellu úr timbri að Hlaðgerðarkoti L124721 í samræmi við gögn. Umsókninni var vísað til umsagnar skipulagsnefndar af 488. afgreiðslufundi byggingarfulltrúi þar sem að ekki er í gildi deiliskipulag af svæðinu.
Afgreiðsla 583. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 820. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 27. janúar 2023
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #583
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi, frá Ingiþór Björnssyni, f.h. Samhjálpar, fyrir 49,8 m² kapellu úr timbri að Hlaðgerðarkoti L124721 í samræmi við gögn. Umsókninni var vísað til umsagnar skipulagsnefndar af 488. afgreiðslufundi byggingarfulltrúi þar sem að ekki er í gildi deiliskipulag af svæðinu.
Skipulagsnefnd samþykkir að meðhöndla umsókn í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og falla frá kröfu um grenndarkynningu byggingarleyfis vegna takmarkaðra grenndarhagsmuna. Nýbygging kapellunnar er umfangslítil í samanburði við núverandi byggingar. Ásýndarbreyting er minniháttar og hefur nær engin áhrif á nýtingarhlutfall lóðar eða lands. Nýbygging er ekki sýnileg frá nærliggjandi íbúðarhúsum sem eru í um 100-200m fjarlægð. Byggingarfulltrúa er heimilt að gefa út byggingarleyfi þegar umsókn samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010, byggingarreglugerð nr. 112/2012 og kynntum gögnum.
- 18. janúar 2023
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #819
Samhjálp Skútuvogi 1g Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr timbri kapellu lóðinni Hlaðgerðarkot, landnr.124721 , í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 49,8 m², 107,8 m³.
Afgreiðsla 488. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 819. fundi bæjarstjórnar.
- 13. janúar 2023
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #582
Samhjálp Skútuvogi 1g Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr timbri kapellu lóðinni Hlaðgerðarkot, landnr.124721 , í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 49,8 m², 107,8 m³.
- 22. desember 2022
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa #488
Samhjálp Skútuvogi 1g Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr timbri kapellu lóðinni Hlaðgerðarkot, landnr.124721 , í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 49,8 m², 107,8 m³.
Vísað til umsagnar skipulagsnefndar þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.