Mál númer 201811100
- 6. febrúar 2019
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #732
Í ljósi óskar Kjósarhrepps um áframhaldandi samstarf um skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002 er lagt til að eldri samningur sveitarfélaganna verði framlengdur þar til að fjölskyldunefnd hefur lokið umfjöllun sinni um drög að nýjum samningi.
Afgreiðsla 1384. fundar bæjarráðs samþykkt á 732. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 31. janúar 2019
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1384
Í ljósi óskar Kjósarhrepps um áframhaldandi samstarf um skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002 er lagt til að eldri samningur sveitarfélaganna verði framlengdur þar til að fjölskyldunefnd hefur lokið umfjöllun sinni um drög að nýjum samningi.
Samþykkt með 3 atkvæðum 1384. fundi bæjarráðs að samningur Kjósahrepps og Mosfellsbæjar frá 19. janúar 2015, með viðauka skv. bókun 1375. fundi bæjarráðs 15. nóvember 2018 verði framlengdur til 30.04.2019 eða þar til fjölskyldunefnd hefur fjallað um málið og drög að nýjum samningi sveitarfélaganna liggja fyrir. Framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs er falið að undirrita samning um framlenginguna og vinna að enduskoðun samnings til lengri tíma.
- 28. nóvember 2018
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #729
Samningur við Kjósarhrepp um barnaverndarstarf.
Afgreiðsla 275. fundar fjölskyldunefndar samþykkt á 729. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 28. nóvember 2018
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #729
Ósk um endurnýjun samnings um barnaverndarmál.
Afgreiðsla 1375. fundar bæjarráðs samþykkt á 729. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 20. nóvember 2018
Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar #275
Samningur við Kjósarhrepp um barnaverndarstarf.
Afgreiðsla bæjarráðs á beiðni Kjósarhrepps um framlengingu samings lögð fram til kynninar.
- 15. nóvember 2018
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1375
Ósk um endurnýjun samnings um barnaverndarmál.
Samþykkt með þremur atkvæðum að framlengja samning um barnaverndarmál til 31. desember 2018.