Mál númer 201305130
- 20. nóvember 2013
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #615
Samkvæmt reglum um bæjarlistamann er bæjarlistamaður 2013, Ólafur Gunnarsson, kallaður til fundar við menningarmálanefnd, til að ráða ráðum um kynningu á honum og verkum hans.
Afgreiðsla 178. fundar menningarmálanefndar samþykkt á 615. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 13. nóvember 2013
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar #178
Samkvæmt reglum um bæjarlistamann er bæjarlistamaður 2013, Ólafur Gunnarsson, kallaður til fundar við menningarmálanefnd, til að ráða ráðum um kynningu á honum og verkum hans.
Rætt um fyrirkomulag kynningar á bæjarlistamanni. Menningarsviði falið að vera áfram í sambandi við Ólaf Gunnarsson um framhaldið.
- 26. júní 2013
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #607
Seinni umferð kjörs bæjarlistamanns 2013.
Bæjarstjórn staðfestir tillögu menningarmálanefndar að bæjarlistamanna árið 2013. Bæjarstjórn vill nota þetta tækifæri og óska Ólafi Gunnarssyni, rithöfundi til hamingju með kjörið.$line$$line$Afgreiðsla 177. fundar menningarmálanefndar samþykkt á 607. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 26. júní 2013
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #607
Óskað var eftir tilnefningum um bæjarlistamann frá bæjarbúum á heimasíðu bæjarins. Niðurstaða liggur hér fyrir. Kjör bæjarlistamanns 2013 tekið fyrir.
$line$$line$Afgreiðsla 176. fundar menningarmálanefndar samþykkt á 607. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 13. júní 2013
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar #177
Seinni umferð kjörs bæjarlistamanns 2013.
Menningarmálanefnd leggur til við bæjarstjórn að Ólafur Gunnarsson rithöfundur verði bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2013.
Ólafur Gunnarsson er einn helsti rithöfundur Íslands. Hann dregur upp lifandi og litsterka mynd af sögutíma og persónum og er
ósmeykur við að velta upp þeim stóru siðferðilegu spurningum sem spurt er í alvöru skáldskap. Hann hefur nýtt sögu Íslands á mjög áhugaverðan hátt í skáldskap. Ólafur er afkastamikill rithöfundur og skáldsögur hans hafa fengið góðar viðtökur og viðurkenningar.Tröllakirkja (1992) var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Íslensku bókmenntaverðlaunin hlaut Ólafur fyrir sögulegu skáldsöguna Öxin og jörðin (2003). Ferðasagan Úti að aka (2006), sem hann skrifaði í samstarfi við Einar Kárason, fékk góðar viðtökur gagnrýnenda. Skáldsagan Milljón prósent menn hefur komið út í enskri þýðingu.
Meðal merkra verka Ólafs eru Blóðakur, Gaga, Heilagur andi og englar vítis, Höfuðlausn, Ljóstollur, Milljón prósent menn, Sögur úr Skuggahverfinu : Tvær sögur, Tröllakirkja, Vetrarferðin og Öxin og jörðin.
Hann hefur einnig skrifað barnabækur eins og Fallegi flughvalurinn, Fallegi flughvalurinn og sagan af litla stjörnukerfinu og Snjæljónin. Þá hefur Ólafur þýtt bækur eins og Á vegum úti og Möltufálkinn. Hann hefur gert leikritið Regnbogastrákurinn og ljóðabækur hans eru Hrognkelsin: Cyclopteri Lumpi, Ljóð og Upprisan eða undan ryklokinu. - 13. júní 2013
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar #176
Óskað var eftir tilnefningum um bæjarlistamann frá bæjarbúum á heimasíðu bæjarins. Niðurstaða liggur hér fyrir. Kjör bæjarlistamanns 2013 tekið fyrir.
Fyrri umferð kjörs á bæjarlistamanni Mosfellsbæjar 2013 fór fram.