Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

26. september 2023 kl. 07:00,
2. hæð Helgafell


Fundinn sátu

  • Ólafur Ingi Óskarsson (ÓIÓ) formaður
  • Sigríður Dóra Sigtryggsdóttir varaformaður
  • Jana Katrín Knútsdóttir (JKK) aðalmaður
  • Ölvir Karlsson (ÖK) áheyrnarfulltrúi
  • Dagný Kristinsdóttir (DK) áheyrnarfulltrúi
  • Halla Karen Kristjánsdóttir (HKK) aðalmaður
  • Brynja Hlíf Hjaltadóttir (BHH) aðalmaður
  • Sigurbjörg Fjölnisdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Gestur Guðrúnarson embættismaður

Fundargerð ritaði

Sigurbjörg Fjölnisdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Staða heim­il­is­lausra með fjöl­þætt­an vanda. Er­indi stjórn­ar Sam­taka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu202203436

    Skýrsla verkefnis ásamt helstu tillögum kynnt fyrir velferðarnefnd. Máli frestað frá fundi velferðarnefndar 23. maí 2023.

    Vel­ferð­ar­nefnd þakk­ar fyr­ir góða og vand­aða skýrslu og tel­ur brýnt að sveit­ar­fé­lög­in sem höfðu frum­kvæði að þess­ari grein­ingu hefj­ist þeg­ar handa við að hrinda í fram­kvæmd þeim brýnu úr­bót­um sem lagð­ar eru til í skýrsl­unni.

  • 2. Beiðni um stækk­un dagdval­ar í Mos­fells­bæ202202075

    Rökstuðningur fyrir synjun stækkunar dagdvalar í Mosfellsbæ lagður fyrir til kynningar sem og svar við endurumsókn um stækkun dagdvalar.

    Vel­ferð­ar­nefnd lýs­ir ánægju með nið­ur­stöðu um­sókn­ar um aukn­ingu á al­menn­um dagdval­ar­rým­um fyr­ir Mos­fells­bæ sem gef­ur mögu­leika á fjöl­breytt­ari þjón­ustu dagdval­ar­inn­ar og stytt­ir bið­lista eft­ir þjón­ust­unni. Nefnd­in vís­ar mál­inu jafn­framt til kynn­ing­ar í öld­unga­ráði.

  • 3. Fjár­hags- og fjár­fest­ingaráætlun 2024 - und­ir­bún­ing­ur með vel­ferð­ar­nefnd202305590

    Farið yfir verkefni velferðarsviðs tengt fjárhagsáætlun 2024. Mál lagt fyrir að nýju.

    Far­ið yfir verk­efni vel­ferð­ar­sviðs í tengsl­um við gerð fjár­hags­áætl­un­ar 2024. Sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs er fal­ið að koma áhersl­um nefnd­ar­inn­ar inn í vinnu við áætlana­gerð­ina.

    • 4. Upp­bygg­ingaráætlun í mála­flokki fatl­aðs fólks202209282

      Drög að uppbyggingaráætlun í málaflokki fatlaðs fólks lögð fyrir að nýju til umræðu.

      Lagt fram og rætt.

      • 5. Jafn­réttisvið­ur­kenn­ing Mos­fells­bæj­ar 2023202308782

        Tillögur til jafnréttisviðurkenningar 2023 lagðar fyrir.

        Vel­ferð­ar­nefnd lýs­ir yfir von­brigð­um með að eng­ar til­nefn­ing­ar til jafn­réttisvið­ur­kenn­ing­ar bár­ust þetta árið. Nefnd­in er sam­mála um að horfa til breytts verklags við und­ir­bún­ing og aug­lýs­ingu við­ur­kenn­ing­ar­inn­ar á næsta ári.

        • 6. Fram­lag rík­is­ins 2023 vegna barna með fjöl­þætt­an vanda og eða mikl­ar þroska- og geðra­sk­arn­ir202309048

          Bréf mennta- og barnamálaráðuneytis, varðandi áform um að veita framlag úr ríkissjóði til að standa straum af hluta kostnaðar sveitarfélaga vegna barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska og geðraskanir og eru vistuð utan heimilis, lagt fram. Jafnframt er skýrsla stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda lögð fram til kynningar. Máli vísað til kynningar fyrir velferðarnefnd frá bæjarráði.

          Lagt fram og kynnt.

        Fundargerðir til staðfestingar

        • 7. Trún­að­ar­mála­fund­ur 2022-2026 - 1652202309023F

          Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 08:40