17. desember 2013 kl. 07:00,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Bryndís Haraldsdóttir (BH) formaður
- Ólafur Gunnarsson (ÓG) varaformaður
- Erlendur Örn Fjeldsted aðalmaður
- Hilmar Stefánsson (HS) aðalmaður
- Jóhannes Bjarni Eðvarðsson (JBE) aðalmaður
- Hanna Bjartmars Arnardóttir áheyrnarfulltrúi
- Jóhanna Björg Hansen framkvæmdastjóri umhverfissviðs
- Ásbjörn Þorvarðsson byggingarfulltrúi
- Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Ásbjörn Þorvarðarson byggingafulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Lágholt 6, umsókn um byggingarleyfi201310005
Umsókn um leyfi til að stækka bílskúr sem sambyggður er við húsið var grenndarkynnt með bréfi dagsettu 15. nóvember 2013 og athugasemdafresti til 16. desember 2013. Engin athugasemd hefur borist.
Svo fremi að ekki berist athugasemdir sem sendar hafa verið innan athugasemdafrests gerir nefndin ekki athugasemdir við að erindið verði samþykkt þegar fullnægjandi gögn liggja fyrir.
2. Hlíðartún 11, umsókn um byggingarleyfi201310135
Umsókn um leyfi til að byggja bílgeymslu í NA-horni lóðarinnar var grenndarkynnt með bréfi dagsettu 14. nóvember 2013 og athugasemdafresti til 13. desember 2013. Engin athugasemd barst.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við að erindið verði samþykkt þegar fullnægjandi gögn liggja fyrir.
3. Leirutangi 22, breytt aðkoma201302260
Tillaga að nýrri aðkomu frá Leirutanga og bílastæði fyrir íbúð á neðri hæð hússins var grenndarkynnt með bréfi dagsettu 18. nóvember 2013 og athugasemdafresti til 17. desember 2013. Engin athugasemd hefur borist.
Svo fremi að ekki berist athugasemdir sem sendar hafa verið innan athugasemdafrests gerir nefndin ekki athugasemdir við að erindið verði samþykkt þegar fullnægjandi gögn liggja fyrir.
4. Frístundalóð Innri Miðdal (125198), ósk um breytingu á deiliskipulagi201312149
Baldur Baldursson óskar 12. desember 2013 eftir breytingu á gildandi deiliskipulagi samkvæmt meðfylgjandi tillögu.
Nefndin samþykkir að tillagan verði grenndarkynnt fyrir næstu nágrönnum.
5. 3 lóðir í Auga, ósk um breytingar á deiliskipulagi.201310334
Á fundinn komu Ingimundur Sveinsson og Örn Kjærnested og kynntu endurskoðaða tillögu að breytingum á deiliskipulagi á lóðunum Gerplustræti 16-22, Gerplustræti 24-26 og Vefarastræti 15-19. Fyrri tillaga var til umræðu á 352. fundi. Einnig lögð fram umsögn skipulagshöfundar, Gylfa Guðjónssonar og álit Sigurðar Einarssonar, arkitekts. Frestað á 356. fundi
Umræður um málið.
6. Gerplustræti 7-11, fyrirspurn um fjölgun íbúða o.fl.201310158
Erindi Hannes Arnar Jónssonar hjá Verkís ehf f.h. Glímis ehf, um fjölgun íbúða í húsinu um 4-5, með samsvarandi fjölgun bílastæða á baklóð. Frestað á 356. fundi.
Nefndin telur að lítilsháttar fjölgun íbúða geti komið til álita, en óskar eftir því að nánari grein verði gerð fyrir áformuðum breytingum á húsgerð og fyrirkomulagi bílastæða áður en hún tekur endanlega afstöðu til erindisins.
7. Þingvallavegur í Mosfellsdal, deiliskipulag201312043
Greint var frá viðræðum við Vegagerðina um Þingvallaveg og skipulagsmál sem varða hann. Frestað á 356. fundi.
Nefndin felur umhverfissviði að taka upp viðræður við Vegagerðina um samstarf við gerð deiliskipulags fyrir Þingvallaveg í Mosfellsdal, þar sem m.a. verði kveðið á um staðsetningar og útfærslur gatnamóta, göngu- og hjólastíga, undirgöng og önnur skipulagsleg atriði sem varða öryggi allra vegfarenda.
8. Laxatunga 62-68, fyrirspurn um breytingu á húsgerð201309225
Lögð fram tillaga Teiknistofu arkitekta að breytingu á deiliskipulagi, unnin fyrir Eyfaxa ehf. Samkvæmt tillögunni verða raðhús á lóðunum einnar hæðar og lóðirnar stækka til suðurs og austurs. Frestað á 356. fundi.
Nefndin samþykkir að skipulagstillagan verði grenndarkynnt fyrir næstu nágrönnum í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga með þeirri breytingu að ekki verði gert ráð fyrir tjörn á aðliggjandi skólalóð.
9. Umsókn Veiðifélags Úlfarsár um framkvæmdaleyfi fyrir fleygun úr klöpp.201312096
Veiðifélag Úlfarsár sækir 6. desember 2013 um framkvæmdaleyfi til þess að fleyga úr klöpp neðst í árfarvegi Úlfarsár til að auðvelda uppgöngu laxfiska. Meðfylgjandi eru umsagnir 9 aðila, þ.á.m. Veiðimálastofnunar, Umhverfisstofnunar og umhverfisnefndar Mosfellsbæjar.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita umbeðið framkvæmdaleyfi og felur skipulagsfulltrúa útgáfu þess.
10. 1. - 3. áfangi Helgafellshverfis, tillögur Hamla 1 ehf. um breytingar á deiliskipulagi201312044
Umræða um málið í framhaldi af kynningu á 356. fundi.
Frestað.