Mál númer 202404074
- 28. ágúst 2024
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #855
Tillögur til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar teknar fyrir og farið í skoðunarferð á tilnefnda staði.
Afgreiðsla 250. fundar umhverfisnefndar samþykkt á 855. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 20. ágúst 2024
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar #250
Tillögur til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar teknar fyrir og farið í skoðunarferð á tilnefnda staði.
Tilnefningar til umhverfisverðlauna fyrir árið 2024 lagðar fyrir umhverfisnefnd til afgreiðslu.
Umhverfisnefnd fór í vettvangsferð til að skoða tilnefningar umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar 2024.
Umhverfisnefnd hefur ákveðið að veita umhverfisviðurkenningu fyrir garð ársins, umhverfisviðurkenningar fyrir fallega einkagarða, tré ársins og framtak íbúa í nærumhverfi þeirra. - 24. apríl 2024
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #849
Umhverfisnefnd skoðar hvaða breytingar nefndin vill gera á fyrirkomulagi umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar.
Afgreiðsla 247. fundar umhverfisnefndar samþykkt á 849. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 9. apríl 2024
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar #247
Umhverfisnefnd skoðar hvaða breytingar nefndin vill gera á fyrirkomulagi umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar.
Nefndin skoðaði fyrirkomulag umhverfisviðurkenninga og lagði til nokkrar áherslu breytingar.