Mál númer 202310743
- 7. febrúar 2024
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #844
Lögð er fram til kynningar umbeðin umsögn skipulagsfulltrúa og umhverfissviðs vegna erindis landeigenda um stofnun lóðar og uppskiptingu lands L226627, í samræmi við afgreiðslu á 599. fundi nefndarinnar. Hjálagt er erindi til afgreiðslu.
Afgreiðsla 605. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 844. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 2. febrúar 2024
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #605
Lögð er fram til kynningar umbeðin umsögn skipulagsfulltrúa og umhverfissviðs vegna erindis landeigenda um stofnun lóðar og uppskiptingu lands L226627, í samræmi við afgreiðslu á 599. fundi nefndarinnar. Hjálagt er erindi til afgreiðslu.
Með vísan í fyrirliggjandi umsögn skipulagsfulltrúa, synjar skipulagsnefnd með fimm atkvæðum umsókn um uppskiptingu lands og stofnun lóðar. Ekki verður séð að fyrirætlanir samræmist skipulagsáætlunum, með vísan í 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- 8. nóvember 2023
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #838
Borist hefur erindi frá Tryggva Einarssyni, dags. 29.10.2023, með ósk um uppskiptingu lands L226627 og stofnun nýrrar 1 ha spildu.
Afgreiðsla 599. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 838. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 3. nóvember 2023
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #599
Borist hefur erindi frá Tryggva Einarssyni, dags. 29.10.2023, með ósk um uppskiptingu lands L226627 og stofnun nýrrar 1 ha spildu.
Lagt fram. Skipulagsnefnd samþykkir með 5 atkvæðum að vísa fyrirspurn til rýni á umhverfissviði.