Mál númer 202210119
- 26. apríl 2023
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #826
Tillaga um úthlutun styrkja ársins 2023 lögð fram. Afgreiðsla velferðarnefndar eins og einstök mál nr. 2-5 bera með sér. Máli frestað frá síðasta fundi.
Afgreiðsla 6. fundar velferðarnefndar samþykkt á 826. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 18. apríl 2023
Velferðarnefnd Mosfellsbæjar #6
Velferðarnefnd samþykkir að taka styrkbeiðni fyrir Okkar heim á dagskrá með afbrigðum í upphafi fundar.Tillaga um úthlutun styrkja ársins 2023 lögð fram. Afgreiðsla velferðarnefndar eins og einstök mál nr. 2-5 bera með sér. Máli frestað frá síðasta fundi.
Samþykkt velferðarnefndar vegna styrkbeiðna er eins og einstök mál nr 2-5 og 10 bera með sér.
Velferðarnefnd felur starfsmönnum velferðarsviðs að vinna að reglum um styrkveitingar. - 29. mars 2023
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #824
Tillaga um úthlutun styrkja ársins 2023 lögð fram. Afgreiðsla velferðarnefndar eins og einstök mál nr. 3-6 bera með sér.
Afgreiðsla 5. fundar velferðarnefndar samþykkt á 824. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 21. mars 2023
Velferðarnefnd Mosfellsbæjar #5
Tillaga um úthlutun styrkja ársins 2023 lögð fram. Afgreiðsla velferðarnefndar eins og einstök mál nr. 3-6 bera með sér.
Frestað vegna tímaskorts.