Mál númer 202205304
- 15. júní 2022
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #807
Krafa landeiganda í Helgafelli á viðurkenningu á rétti til íbúðareininga og/eða andvirðis íbúðareininga. Máli frestað á síðasta fundi.
Halla Karen Kristjánsdóttir, bæjarfulltrúi B-lista, víkur sæti í málinu vegna vanhæfis.
***
Afgreiðsla 1537. fundar bæjarráðs samþykkt á 807. fundi bæjarstjórnar með tíu atkvæðum.
- 9. júní 2022
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1537
Krafa landeiganda í Helgafelli á viðurkenningu á rétti til íbúðareininga og/eða andvirðis íbúðareininga. Máli frestað á síðasta fundi.
Halla Karen Kristjánsdóttir, bæjarfulltrúi víkur sæti í málinu vegna vanhæfis og tekur Aldís Stefánsdóttir sæti í málinu í hennar stað. Lovísa Jónsdóttir, varaformaður tók við stjórn fundarins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela lögmanni Mosfellsbæjar að hafna kröfunni m.a. með vísan til þess að Mosfellsbær er ekki skuldbundinn af samkomulaginu sem krafan byggir á. Þá er vísað til þess að fyrir héraðsdómi er til umfjöllunar dómsmál er lýtur að stöðu þess samkomulags sem krafan er byggð á.
- Fylgiskjalfskj 1 Kröfubréf dags. 13.5.2022.pdfFylgiskjalfskj. 2-4.pdfFylgiskjalfskj 5 Aðalskipulag - greinargerð.pdfFylgiskjalfskj 5 Aðalskipulag greinagerð - forsendur.pdfFylgiskjalfskj 6rammaskipulag_helgafellshverfis_2005[50].pdfFylgiskjalfskj. 7 - Fasteignir_skjal_R-013165_2005.pdfFylgiskjalfskj 8 Deiliskipulag.pdfFylgiskjalfskj 9 Breyting á aðalskipulagi.pdfFylgiskjalfskj 10 helgafell 2.pdfFylgiskjalfskj 10 Hlutdeild Helgafells.pdfFylgiskjalRE: BT Bæjarstjórnar Krafa um viðurkenningu á rétti til íbúðareininga og/eða andvirðis íbúðareininga.pdf
- 1. júní 2022
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #806
Krafa landeiganda í Helgafelli á viðurkenningu á rétti til íbúðareininga og/eða andvirðis íbúðareininga.
Halla Karen Kristjánsdóttir, bæjarfulltrúi B-lista, vék af fundi vegna vanhæfis undir þessum dagskrárlið. Leifur Ingi Eysteinsson varamaður tók sæti í málinu.
***
Afgreiðsla 1536. fundar bæjarráðs samþykkt á 806. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 25. maí 2022
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1536
Krafa landeiganda í Helgafelli á viðurkenningu á rétti til íbúðareininga og/eða andvirðis íbúðareininga.
Til máls tóku:
ÁS, HS, SÓJ, ÞMHErindið lagt fram. Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum að fresta afgreiðslu málsins.