Mál númer 202103579
- 26. apríl 2023
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #826
Kynning á niðurstöðum árlegrar jafnlaunaúttektar.
Afgreiðsla 1576. fundar bæjarráðs samþykkt á 826. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 19. apríl 2023
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1576
Kynning á niðurstöðum árlegrar jafnlaunaúttektar.
Kynning á niðurstöðum árlegrar jafnlaunaúttektar vegna ársins 2022 sýnir að jafnlaunakerfi Mosfellsbæjar uppfyllir áfram kröfur staðalsins ÍST 85:2012. Launamunur mælist 1,11% og niðurstaðan sýnir að engin óleyst vandamál, frávik eða athugasemdir eru til staðar frá síðustu úttekt.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með niðurstöður þessarar úttektar og góðan árangur af innleiðingu jafnlaunavottunar.
- 7. apríl 2021
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #780
Staðfesting á jafnlaunavottun Mosfellsbæjar 2021-2024.
Afgreiðsla 1482. fundar bæjarráðs samþykkt á 780. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 25. mars 2021
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1482
Staðfesting á jafnlaunavottun Mosfellsbæjar 2021-2024.
Upplýsingar um að Mosfellsbær hafi hlotið jafnlaunavottun samkvæmt IST 85:2012 til þriggja ára lagðar fram til kynningar.