Mál númer 202003245
- 24. júní 2020
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #764
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi var auglýst frá 15. april til 29. maí 2020. Auglýsing birtist í Lögbirtingarblaðinu, Fréttablaðinu og á heimasíðu Mosfellsbæjar, uppdráttur var aðgengilegur á vef og á upplýsingatorgi. Engar athugasemdir bárust.
Afgreiðsla 39. afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa lögð fram til kynningar á 764. fundi bæjarstjórnar.
- 19. júní 2020
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #517
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi var auglýst frá 15. april til 29. maí 2020. Auglýsing birtist í Lögbirtingarblaðinu, Fréttablaðinu og á heimasíðu Mosfellsbæjar, uppdráttur var aðgengilegur á vef og á upplýsingatorgi. Engar athugasemdir bárust.
- 12. júní 2020
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa #39
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi var auglýst frá 15. april til 29. maí 2020. Auglýsing birtist í Lögbirtingarblaðinu, Fréttablaðinu og á heimasíðu Mosfellsbæjar, uppdráttur var aðgengilegur á vef og á upplýsingatorgi. Engar athugasemdir bárust.
Þar sem engar athugasemdir bárust við tillöguna, með vísan í 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, skoðast tillagan samþykkt og mun skipulagsfulltrúi annast gildistöku hennar skv. 42. gr. skipulagslaga, í samræmi við afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar.
- 1. apríl 2020
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #758
Borist hefur erindi og uppdráttur til kynningar frá Arkís arkitektum, f.h. landeiganda í landi Lynghóls, þar sem óskað er eftir deiliskipulagsbreytingu á L125346 þar sem mörk deiliskipulags eru stækkuð fyrir L125351.
Afgreiðsla 512. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 758. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 27. mars 2020
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #512
Borist hefur erindi og uppdráttur til kynningar frá Arkís arkitektum, f.h. landeiganda í landi Lynghóls, þar sem óskað er eftir deiliskipulagsbreytingu á L125346 þar sem mörk deiliskipulags eru stækkuð fyrir L125351.
Skipulagsnefnd samþykkir að deilskipulagstillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.