Mál númer 201802101
- 5. september 2018
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #723
Undirbúningur langtímalántöku í samræmi við fjárhagsáætlun ársins.
Afgreiðsla 1364. fundar bæjarráðs samþykkt á 723. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 30. ágúst 2018
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1364
Undirbúningur langtímalántöku í samræmi við fjárhagsáætlun ársins.
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkir með 3 atkvæðum á 1364. fundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 700.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum í lánssamningi nr. 1809_91 sem bæjarráð hefur kynnt sér.
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til endurfjármögnunar afborgana lána og fjármögnun framkvæmda við skólamannvirki.
Jafnframt er Haraldi Sverrissyni, bæjarstjóra, kt. 141261-7119, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Mosfellsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns. - 4. apríl 2018
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #714
Undirbúningur langtímalántöku í samræmi við fjárhagsáætlun ársins.
Afgreiðsla 1348. fundar bæjarráðs samþykkt á 714. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 22. mars 2018
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1348
Undirbúningur langtímalántöku í samræmi við fjárhagsáætlun ársins.
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkir með þremur atkvæðum á 1348. fundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 300.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum í lánssamningi nr. 1803_54 sem bæjarráð hefur kynnt sér.
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til endurfjármögnunar afborgana lána og fjármögnun framkvæmda við skólamannvirki.
Jafnframt er Haraldi Sverrissyni, bæjarstjóra, kt. 141261-7119, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Mosfellsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.