Mál númer 201401638
- 7. maí 2014
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #626
Tillaga að breytingum á deiliskipulagi, unnin af Kurtogpí arkitektum fyrir Hömlur 1 ehf., var auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 5. mars 2014 með athugasemdafresti til 16. apríl 2014. Engin athugasemd barst.
Afgreiðsla 367. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 626. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 29. apríl 2014
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #367
Tillaga að breytingum á deiliskipulagi, unnin af Kurtogpí arkitektum fyrir Hömlur 1 ehf., var auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 5. mars 2014 með athugasemdafresti til 16. apríl 2014. Engin athugasemd barst.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með fjórum greiddum atkvæðum og felur skipulagsfulltrúa að annast gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar.
- 12. febrúar 2014
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #620
Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi, unnin af kurtogpí arkitektum fyrir Hömlur 1 ehf.
Afgreiðsla 359. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 620. fundi bæjarstjórnar með sex atkvæðum gegn einu atkvæði bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar.
- 4. febrúar 2014
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #359
Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi, unnin af kurtogpí arkitektum fyrir Hömlur 1 ehf.
Nefndin samþykkir með 4 atkvæðum að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga með þeirri breytingu að bætt verði inn ákvæðum um nýtingarhlutfall og færslu á göngustíg. Umsækjendur greiði allan kostnað sem leiðir af breytingunum.
Fulltrúi íbúahreyfingarinnar situr hjá við afgreiðslu málsins.