Mál númer 201302174
- 3. apríl 2013
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #602
Afgreiðsla umsókna um fjárveitingar til lista- og menningarmála árið 2013.
Tillaga bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar.$line$Íbúahreyfingin telur rétt að umsóknir um styrki úr Lista- og menningarsjóði sé vísað frá ef tilskilin gögn vantar svo sem starfsáætlun og rekstaryfirlit og leggur til að nefndin endurskoði úthlutunina með tilliti til þess.$line$Tillagan borin upp og felld með sex atkvæðum gegn einu atkvæði.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir á 602. fundi sínum með sex atkvæðum, tillögu menningarmálanefndar frá 174. fundi nefndarinnar varðandi, úthlutun úr Lista- og menningarsjóði árið 2013 samtals að upphæð 2 milljónir króna.$line$$line$Vegna framkominna athugasemda bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar beinir bæjastjórn því til menningarmálanefndar að hún kanni verklag vegna úthutunar úr Lista- og menningarsjóði.
- 25. mars 2013
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar #174
Afgreiðsla umsókna um fjárveitingar til lista- og menningarmála árið 2013.
Alls bárust 20 umsóknir.
Menningarmálanefnd leggur til við bæjarstjórn að úthlutun úr Lista- og menningarsjóði árið 2013 verði samtals 2 milljónir. Það verði gert með eftirfarandi hætti:
Kvennakórinn Stöllurnar, Ljósakórinn, Álafosskórinn, Reykjalundarkórinn, Mosfellskórinn, Kammerkór Mosfellsbæjar, Kvennakórinn Heklurnar og Kirkjukór Lágafellssóknar hljóti starfstyrk að upphæð 70.000, Einar Aron Fjalarsson 100.000 vegna töfrasýningar, Sigrún Harðardóttir og Halldór Sveinsson 200.000 til tónleikahalds, Sigfús Tryggvi Blumenstein 300.000 til skráningar á Stríðsminjasafni, Ari Trausti Guðmundsson 370.000 til heimasíðugerðar um Guðmund frá Miðdal, Skólahljómsveit Mosfellsbæjar 210.000 vegna tónleikaferðar til Danmerkur og Brúarsmiðjan ehf.260.000 til kortlagningar og merkingar gönguleiða. - 20. mars 2013
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #601
Afgreiðsla umsókna um fjárveitingar til lista- og menningarmála árið 2013.
Afgreiðsla 173. fundar menningarmálanefndar lögð fram á 601. fundi bæjarstjórnar.
- 14. mars 2013
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar #173
Afgreiðsla umsókna um fjárveitingar til lista- og menningarmála árið 2013.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.