Mál númer 201209201
- 24. október 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #591
1090. fundur bæjarráðs vísar erindinu til fjölskyldunefndar til umsagnar og afgreiðslu, sem merkir að nefndir fer með fullnaðarafgreiðslu erindisins.
1090. fundur bæjarráðs vísaði erindi Q-félagsins til fjölskyldunefndar til umsagnar og afgreiðslu.$line$Í erindinu óskar Q félagið, félag hinsegin stúdenta eftir styrk að upphæð 5.000 til 25.000 krónur til kynningarstarfs.$line$$line$Fjölskyldunefnd samþykkir samhljóða að ekki sé unnt að verða við erindinu þar sem úthlutun styrkja fyrir árið 2012 hefur þegar farið fram. $line$$line$Afgreiðsla 197. fundar fjölskyldunefndar samþykkt á 591. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 16. október 2012
Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar #197
1090. fundur bæjarráðs vísar erindinu til fjölskyldunefndar til umsagnar og afgreiðslu, sem merkir að nefndir fer með fullnaðarafgreiðslu erindisins.
1090. fundur bæjarráðs vísaði erindi Q-félagsins til fjölskyldunefndar til umsagnar og afgreiðslu.
Í erindinu óskar Q félagið, félag hinsegin stúdenta eftir styrk að upphæð 5.000 til 25.000 krónur til kynningarstarfs.
Til máls tók: HS.
Fjölskyldunefnd samþykkir samhljóða að ekki sé unnt að verða við erindinu þar sem úthlutun styrkja fyrir árið 2012 hefur þegar farið fram.
Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði fjölskylduþjónustu í Mosfellsbæ í október ár hvert. Umsóknir fyrir styrkveitingarárið skulu berast þjónustuveri Mosfellsbæjar Þverholti 2, 1. hæð á þar til gerðum eyðublöðum í síðasta lagi 30.nóvember það ár. Eyðublöðin má nálgast í þjónustuverinu og á heimasíðu bæjarfélagsins www.mos.is.
- 26. september 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #589
Q-félag hinsegin stúdenta óskar eftir því við Mosfellsbæ að bærinn styrki til fræðslustarfssemi/ bæklingagerðar.
Afgreiðsla 1090. fundar bæjarráðs, að vísa erindinu til fjölskyldunefndar til umsagnar og afgreiðslu, samþykkt á 589. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 20. september 2012
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1090
Q-félag hinsegin stúdenta óskar eftir því við Mosfellsbæ að bærinn styrki til fræðslustarfssemi/ bæklingagerðar.
Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa erindinu til fjölskyldunefndar til umsagnar og afgreiðslu.