Mál númer 2012081267
- 12. september 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #588
Áður á dagskrá 1086. fundar bæjarráðs þar sem óskað var umsagnar framkvæmdastjóra menningarsviðs. Hjálögð er umsögnin.
Afgreiðsla 1087. fundar bæjarráðs, að heimila lagfæringar í sal 1 í samræmi við framlagt minnisblað, samþykkt á 588. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 30. ágúst 2012
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1087
Áður á dagskrá 1086. fundar bæjarráðs þar sem óskað var umsagnar framkvæmdastjóra menningarsviðs. Hjálögð er umsögnin.
Til máls tóku: HP og HSv.
Samþykkt með þremur atkvæðum að heimila lagfæringar í sal 1 í samræmi við framlagt minnisblað. - 29. ágúst 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #587
Afgreiðsla 1086. fundar bæjarráðs, að vísa erindinu til framkvæmdastjóra menningarsviðs til umsagnar, samþykkt á 587. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 23. ágúst 2012
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1086
Samþykkt með þremur atkæðum að vísa erindinu til framkvæmdastjóra menningarsviðs til umsagnar.